Southampton fær 15 milljónir frá Hoffenheim (Staðfest)
Þýski miðvörðurinn Armel Bella-Kotchap er kominn til Hoffenheim þrátt fyrir vandamál í læknisskoðun hjá félaginu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25143 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Þýski miðvörðurinn Armel Bella-Kotchap er kominn til Hoffenheim þrátt fyrir vandamál í læknisskoðun hjá félaginu.
Spænska félagið Villarreal hefur nýtt sér ótrúlega lágt riftunarákvæði í samningi spænska landsliðsmannsins Ayoze Pérez við Real Betis.
Þýski sóknartengiliðurinn Marco Reus er búinn að skrifa undir tveggja og hálfs árs samning við Los Angeles Galaxy sem leikur í bandarísku MLS deildinni.
KR tilkynnti rétt i þessu að aðalstjórn félagsins hefði óskað eftir kröftum Pálma Rafns Pálmasonar fyrr en áætlað var. Hann er því nú þegar tekinn við sem framkvæmdastjóri félagsins og hættir sem þjálfari meistaraflokks karla. Óskar Hrafn Þorvaldsson tekur við sem þjálfari eftir að hafa verið í um tvær vikur aðstoðarþjálfari Pálma. Fótbolti.net fjallaði um það í gær að Óskar væri tekinn við þjálfun liðsins. Í tilkynningu KR segir að aðstöðumál KR séu á mjög alvarlegu stigi og því geti félagið ekki verið án framkvæmdastjóra fram yfir lok tímabilsins. Bjarni Guðjónsson hættir í því starfi í lok mánaðar. Þar sem talað er um aðstöðumál þá tilkynnti KR í gær að búið væri að loka æfingavellinum, gervigrasvellinum sem venslaliðið KV spilar venjulega sína leiki á. Sá völlur er ónýtur.
Spænska félagið Girona, sem er í eigu City Football Group sem eiga einnig Manchester CIty á Englandi, hefur fest kaup á norður-makedónska framherjanum Bojan Miovski.
Chante Sandiford fékk félagaskipti yfir í Þrótt áður en félagaskiptaglugginn lokaði á dögunum. Mollee Swift, markvörður Þróttar, hefur verið tæp vegna meiðsla og því sannfærði Þróttur Chante um að fá félagaskipti, til öryggis.
Varnarmaðurinn Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir út næsta tímabil.
Skoska félagið Celtic hefur fest kuap á írska landsliðsmanninum Adam Idah en hann kemur frá Norwich City fyrir 9,5 milljónir punda.
Danski miðjumaðurinn Gustav Bonde Dahl er genginn í raðir Fram en hann lék síðast með Vendsyssel í heimalandinu.
Brighton gekk í dag frá kaupum á þýska kantmanninum Brajan Gruda frá Mainz fyrir 25 milljónir punda.
Joao Mendes, 19 ára gamall sonur Ronaldinho, hefur samið við enska B-deildarfélagið Burnley en hann kemur til félagsins frá Barcelona á Spáni.
Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United á Englandi, hefur framlengt samning sinn við félagið til 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu frá United.
Eyjakonan Cloé Lacasse hefur yfirgefið herbúðir enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal. Hún er búin að skrifa undir samning hjá Utah Royals í Bandaríkjunum. Hún skrifar undir samning hjá Utah til ársins 2027.
Stjarnan hefur staðfest sölu á Helga Fróða Ingasyni til hollenska B-deildarfélagsins Helmond Sport. Helgi skrifar undir fjöggura ára samning við hollenska félagið. Hinn átján ára gamli Helgi Fróði er mikið efni en þessi skemmtilegi miðjumaður hefur leikið 30 leiki fyrir Stjörnuna í efstu deild og skorað tvö mörk. Helmond Sport er félag sem stofnað var 1967 og hafnaði um miðja hollensku B-deildina á síðasta tímabili. Liðið komst upp í efstu deild 1982 og var þar í tvö tímabil.
ÍA hefur kallað til baka Breka Þór Hermannsson úr láni frá Njarðvík.
KR hefur kallað sóknarmanninn efnilega, Óðinn Bjarkason, aftur til félagsins frá KV.
Varnarmaðurinn Gunnar Gunnarsson hefur fengið félagaskipti frá Álftanesi í Grindavík.
Franska félagið Marseille hefur sótt framherjann Elye Wahi frá Lens en þetta var tilkynnt í gær.
Breiðablik hefur landað bandaríska sóknarmanninum Samönthu Rose Smith á láni frá Fjarðabyggð/Hetti/Leikni út þetta tímabil.
KA hefur gengið frá samningum við Dag Inga Valsson en hann kemur til félagsins frá Keflavík. Hann skrifaði undir samning sem gildir út næstu leiktíð.