Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 30. janúar 2025 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Skriniar lánaður til Fenerbahce (Staðfest)
Slóvakíski varnarjaxlinn Milan Skriniar er búinn að skrifa undir samning við Fenerbahce sem gildir út tímabilið.

Hann kemur til félagsins á láni frá PSG en hann hefur ekki verið að fá nægan spiltíma hjá Frakklandsmeisturunum.

Skriniar var á sínum tíma algjör lykilmaður í varnarlínu Inter og reitti marga stuðningsmenn félagsins til reiði þegar hann neitaði að skrifa undir nýjan samning og skipti þess í stað til PSG á frjálsri sölu.

Hann fann aldrei taktinn hjá PSG og hefur í heildina spilað 37 leiki á einu og hálfu ári hjá félaginu, þar af aðeins 5 á fyrri hluta yfirstandandi tímabils.

Nú mun hann leika undir stjórn José Mourinho hjá Fenerbahce, þar sem hann mun berjast við gæðamikla leiikmenn um sæti í byrjunarliðinu. Caglar Söyüncü og Diego Carlos eru meðal miðvarða sem eru í leikmannahópi Fenerbahce.

Mourinho er kominn með feykisterkan leikmannahóp sem situr í öðru sæti tyrknesku deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Galatasaray.

Þá er liðið einnig í Evrópudeildinni og mætir þar Midtjylland í mikilvægum úrslitaleik í kvöld.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner