FRÉTTIR31.08.2023, 15:53
Þýska félagið Eintracht Braunschweig tilkynnti rétt í þessu að Þórir Jóhann Helgason væri genginn í raðir félagsins. Miðjumaðurinn kemur á láni frá ítalska félaginu Lecce út tímabilið.
Kaupmöguleiki er í lánssamningnum sem þýska félagið getur nýtt sér á meðan á lánsdvölinni stendur.
Þórir er 22 ára Hafnfirðingur sem lék bæði með Haukum og FH áður en hann var seldur frá Fimleikafélaginu til Lecce árið 2021. Félagið komst upp í A-deildina á fyrsta tímabili Þóris og hélt sér uppi í vor.
Alls hefur hann spilað 41 leik fyrir Lecce, skorað eitt mark og lagt upp eitt. Hann á að baki sextán landsleiki og hefur í þeim skorað tvö mörk.
FRÉTTIR31.08.2023, 15:21
Búlgarski miðjumaðurinn Ilia Gruev er genginn í raðir Leeds United frá Werder Bremen og gerði fjögurra ára samning við enska Championship félagið.
Gruev er 23 ára og hefur verið hjá þýska félaginu síðan 2015 þegar hann var í unglingaliðum félagsins.
FRÉTTIR31.08.2023, 14:17
Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir eins árs samning við danska félagið Lyngby. Félagið tilkynnti það á samfélagsmiðlum rétt í þessu en hann stóðst læknisskoðun í gær.
Gylfi er að snúa aftur í fótboltann eftir rúmlega tveggja ára fjarveru.
FRÉTTIR31.08.2023, 14:11
Viðar Ari Jónsson er genginn í raðir Hamarkameratene í Noregi en í dag var tilkynnt að hann hefði skrifað undir samning út næsta tímabili.
Viðar gekk í raðir FH í lok síðasta mánaðar og skrifaði þá undir samning sem gerði honum kleift að fara erlendis án ef spennandi tilboð kæmi þaðan. Hann er 29 ára og á að baki sjö landsleiki.
Viðar spilaði fjóra leiki fyrir FH í þessum mánuði og skoraði eitt mark. FH fékk sjö stig úr leikjunum fjórum.
Hjá HamKam hittir Viðar Ari fyrir KA-manninn Brynjar Inga Bjarnason sem gekk í raðir félagsins í upphafi árs frá Vålerenga. Brynjar hefur verið í byrjunarliði liðsins í tveimur síðustu leikjum sem báðir hafa unnist.
HamKam er sem stendur í 11. sæti Eliteserien, fimm stigum fyrir ofan fallumspilssæti. Næsti leikur liðsins er gegn Bodö/Glimt á sunnudag.
FRÉTTIR31.08.2023, 12:19
Liverpool hefur lánað varnarmanninn Nathaniel Phillips til Skotlandsmeistara Celtic í Glasgow. Samkomulagið gildir til janúar.
Koma Phillips er kærkomin viðbót fyrir Celtic sem hefur lent í meiðslavandræðum í öftustu línu.
FRÉTTIR31.08.2023, 10:27
Belgíski sóknarmaðurinn Romelu Lukaku er orðinn leikmaður ítalska félagsins Roma. Hann kemur til Jose Mourinho og lærisveina á lánssamningi frá Chelsea sem gildir út tímabilið.
„Móttökurnar sem ég hef fengið frá félaginu og stuðningsmönnum hafa gert mig spenntan. Þær hafa gefið mér enn meiri eldmóð," segir hinn þrítugi Lukaku við heimasíðu Roma.
Hann hefur leikið á láni hjá Inter tvívegis, varð Ítalíumeistari með liðinu 2021 og bikarmeistari á síðasta tímabili. Þá hjálpaði hann liðinu að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrr á þessu ári.
FRÉTTIR31.08.2023, 07:00

Ítalska félagið Bologna hefur verið duglegt að styrkja leikmannahópinn sinn í sumar og er búið að krækja í nokkra áhugaverða leikmenn.

FRÉTTIR31.08.2023, 06:00

Celtic var að staðfesta kaup á Luis Palma frá gríska félaginu Aris Thessaloniki, en hann er níundi leikmaðurinn sem skoska stórveldið kaupir í sumar.

FRÉTTIR30.08.2023, 23:53

Willum Þór Willumsson er lykilleikmaður í liði Go Ahead Eagles í hollenska boltanum. Hann vakti mikla athygli með frammistöðu sinni á síðustu leiktíð og voru FC Twente og FC Utrecht áhugasöm um að fá hann í sínar raðir, auk fleiri félagsliða utan landsteinanna.

FRÉTTIR30.08.2023, 23:30

Franska félagið Lyon er búið að festa kaup á Ernest Nuamah, 19 ára kantmanni frá Gana.

FRÉTTIR30.08.2023, 22:51

Spænska félagið Celta Vigo var að ganga frá kaupum á gríska framherjanum Anastasios Douvikas, sem er 24 ára gamall og kemur úr röðum FC Utrecht í Hollandi.

FRÉTTIR30.08.2023, 20:57

AS Mónakó er búið að staðfesta félagsskipti Folarin Balogun til félagsins frá Arsenal.

FRÉTTIR30.08.2023, 20:00

Hollenska stórveldið Ajax er búið að bæta tíu leikmönnum við sig í sumar eftir mikið vonbrigðatímabil á síðustu leiktíð, þar sem liðið endaði í þriðja sæti hollensku deildarinnar - þrettán stigum eftir toppliði Feyenoord.

FRÉTTIR30.08.2023, 19:50

Ítalska stórveldið Inter er búið að staðfesta félagsskipti Benjamin Pavard frá Þýskalandsmeisturum FC Bayern.

FRÉTTIR30.08.2023, 18:44

Þýski markvörðurinn Steven Benda er fimmti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Fulham í sumar.

FRÉTTIR30.08.2023, 18:20

Það er mikið umbreytingasumar í gangi hjá fyrrum Evrópudeildarmeisturum Eintracht Frankfurt, sem er búið að missa tvo lykilmenn á frjálsri sölu auk þess að selja aðra tvo lykilmenn frá sér.

FRÉTTIR30.08.2023, 17:43

Kvennalið Brighton & Hove Albion er búið að staðfesta félagsskipti Maríu Þórisdóttur frá Manchester United.

FRÉTTIR30.08.2023, 17:33
Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby hefur tryggt sér varnarmanninn Marc Muniesa sem var samherji Arons Einars Gunnarssonar hjá Al-Arabi í Katar.
Muniesa er 31 árs og kom upp úr unglingastarfi Barcelona og lék tvo leiki fyrir aðallið félagsins áður en hann hélt til Stoke City þar sem hann var 2013-2018.
FRÉTTIR30.08.2023, 09:42
Leeds United hefur fengið bakvörðinn Djed Spence lánaðan frá Tottenham út tímabilið.
Þessi 23 ára leikmaður kom í gegnum akademíu Fulham áður en hann gekk í raðir Middlesbrough þar sem hann lék 70 leiki.
Hann hjálpaði svo Nottingham Forest að vinna sæti í ensku úrvalsdeildinni þegar hann var á láni hjá félaginu 2021-22.
Spence gekk í raðir Tottenham í fyrra fyrir 20 milljónir punda en lék aðeins sex leiki, alla sem varamaður, áður en hann fór á láni til Rennes í janúar.
Leeds er með fimm stig eftir fyrstu fjórar umferðir Championship-deildarinnar en liðið féll úr úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Í gær sló Salford City lið Leeds út úr deildabikarnum.
FRÉTTIR30.08.2023, 09:05
Ágúst Orri Þorsteinsson er búinn að gangast undir læknisskoðun og skrifa undir þriggja ára samning við ítalska félagið Genoa sem kaupir hann frá Breiðabliki.
Ágúst er átján ára vængmaður, fæddur árið 2005, sem hefur fengið hlutverk í liði Breiðabliks í sumar.