Fotbolti.net
31.08.23 - 10:27
Elvar Geir Magnússon

Lukaku til Roma (Staðfest)

Lukaku er kominn til Roma.

Lukaku er kominn til Roma.

Canon

Mynd: Getty Images

Belgíski sóknarmaðurinn Romelu Lukaku er orðinn leikmaður ítalska félagsins Roma. Hann kemur til Jose Mourinho og lærisveina á lánssamningi frá Chelsea sem gildir út tímabilið.

„Móttökurnar sem ég hef fengið frá félaginu og stuðningsmönnum hafa gert mig spenntan. Þær hafa gefið mér enn meiri eldmóð," segir hinn þrítugi Lukaku við heimasíðu Roma.

Hann hefur leikið á láni hjá Inter tvívegis, varð Ítalíumeistari með liðinu 2021 og bikarmeistari á síðasta tímabili. Þá hjálpaði hann liðinu að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrr á þessu ári.
Hjá Roma mun Lukaku klæðast treyju númer 90 en hann hefur áður leikið undir stjórn Mourinho, bæði hjá Manchester United og Chelsea.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.