Bernardo Silva búinn að framlengja (Staðfest)

Bernardo Silva er búinn að skrifa undir nýjan samning við Manchester City sem gildir næstu þrjú árin, eða til 2026. Hann var áður samningsbundinn félaginu til 2025.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25177 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Bernardo Silva er búinn að skrifa undir nýjan samning við Manchester City sem gildir næstu þrjú árin, eða til 2026. Hann var áður samningsbundinn félaginu til 2025.

Valur staðfesti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við Triestina Calcio á Ítalíu. Samkomulagið er á þá leið að ítalska félagið kaupir Kristófer af Val.

AC Milan hefur nælt í hinn 21 árs gamla Marco Pellegrino frá argentínska félaginu Platense. Hann skrifar undir fimm ára samning.

Fabrizio Romano greinir frá því að kaupverðið sé 3 milljónir evra.

Aaron Ramsey er genginn til liðs við Burnley frá Aston Villa. Kaupverðið er talið vera í kringum 12 milljónir punda.

Logi Tómasson er genginn í raðir norska félagsins Strömsgodset sem kaupir hann af uppeldisfélaginu Víkingi. Vinstri bakvörðurinn skrifar undir þriggja ára samning. Logi verður 23 ára í næsta mánuði og hefur hann verið einn allra besti vinstri bakvörður landsins undanfarin ár. Hann lék í fyrra sína fyrstu tvo A-landsleiki.
West Ham hefur gengið frá kaupum á Konstantinos Mavropanos frá Stuttgart. Mavropanos er grískur landsliðsmiðvörður sem var á mála hjá Arsenal á árunum 2018-2022. Mavropanos skrifar undir fimm ára samning. Kaupverðið er sautján milljónir punda og svo getur Stuttgart fengið tvær milljónir punda til viðbótar í árangurstengdum greiðslum.
Burnley hefur gengið frá kaupum á belgíska miðverðinum Hannes Delcroix og kemur hann frá belgíska félaginu Anderlecht. Kaupverðið er óuppgefið. Vincent Kompany, stjóri Burnley, var þjálfari Anderlecht og lék Delcroix því undir stjórn Kompany þar.
Njarðvík hefur tilkynnt það að félagið krækti í hinn fjölhæfa Nick Kaajimolen áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
Newcastle hefur tilkynnt um komu bakvarðarins efnilega Lewis Hall til félagsins. Hall kemur til Newcastle á láni út tímabilið en svo er skylda hjá félaginu að kaupa hann næsta sumar fyrir 28 milljónir punda. Kaupverðið gæti svo hækkað í allt að 35 milljónir punda.
Atlético Madríd hefur fest kaup á nígeríska sóknarmanninum Samu Omorodion frá Granada.
Flynn Downes er kominn til Southampton á láni út leiktíðina en hann kemur frá West Ham.
Bandaríski hægri bakvörðurinn Sergino Dest er mættur til PSV Eindhoven á láni frá Barcelona.
Færeyski landsliðsmaðurinn Petur Knudsen samdi í síðasta mánuði við bandaríska félagið El Paso. Hann skrifaðu undir samning sem gildir út árið. Hann var svo tilkynntur sem nýr leikmaður liðsins fyrir helgi. Knudsen er 25 ára sóknarmaður sem rann út á samningi hjá Lyngby í sumar. FH reyndi að fá hann í sínar raðir en Færeyingurinn vildi fara í sterkari deild. Grindavík reyndi þá einnig að fá hann í sínar raðir.
Þór/KA hefur gefið það út að Hulda Ósk Jónsdóttir sé búin að skrifa undir nýjan samning við félagið sem gildir til ársins 2025.
Markvörðurinn Ben Foster hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna, aftur.

Króatíski miðjumaðurinn Lovro Majer er orðinn þriðji dýrasti leikmaður í sögu þýska félagsins Wolfsburg eftir að félagið keypti hann fyrir rúmlega 25 milljónir evra.

Genoa er komið aftur upp í efstu deild á Ítalíu og er búið að styrkja leikmannahópinn sinn umtalsvert frá síðustu leiktíð.

Spænski leikmaðurinn Sergi Canos er genginn til liðs við Valencia frá Brentford.
Bournemouth gekk í dag frá kaupum á bandaríska miðjumanninum Tyler Adams en hann kemur frá Leeds United.
Tyrkneski miðvörðurinn Merih Demiral er genginn í raðir Al-Ahli í Sádi-Arabíu en hann kemur frá Atalanta.