Fotbolti.net
10.01.24 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stjarnan selt átta uppalda erlendis á síðustu fjórum árum

Stjarnan selt átta uppalda erlendis á síðustu fjórum árum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir að tímabilinu 2019 lauk og áður en tímabilið 2024 hefst verður Stjarnan búin að selja átta uppalda leikmenn frá sér. Fyrir þann tíma var umrætt að fáir skiluðu sér frá Garðabænum og í atvinnumennsku erlendis.

Fyrstur til að halda út var Alex Þór Hauksson sem samdi við Öster í Svíþjóð, næstur var Daníel Freyr Kristjánsson sem fór til Midtjylland, Sirius keypti Óla Val Ómarsson, Guðmundur Baldvin Nökkvason fór til Mjällby, Ísak Andri Sigurgeirsson fór til Norrköping og í gær voru þeir Gunnar Orri Olsen og Eggert Aron Guðmundsson staðfestir hjá nýjum félögum; Eggert hjá Elfsborg og Gunnar hjá FC Kaupmannahöfn.
Áfram horfa erlend félög til Stjörnunnar - Tveir fæddir 2008 á förum
TENGT EFNI

Áfram horfa erlend félög til Stjörnunnar - Tveir fæddir 2008 á förum

Þá vantar einungis (Staðfest) svigann á félagaskipti Tómasar Óla Kristjánssonar sem mun ganga í raðir AGF á þessu ári.

Það er greinilegt að eitthvað hefur breyst hjá Stjörnunni og er áhugi á fleiri leikmönnum liðsins og alls ekki ólíklegt að fleiri verði seldir erlendis á þessu ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.