Sindri Snær úr Árbæ í FH (Staðfest)
Markvörðurinn Sindri Snær Vilhjálmsson hefur fengið félagaskipti úr Árbæ og yfir í FH en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25190 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Markvörðurinn Sindri Snær Vilhjálmsson hefur fengið félagaskipti úr Árbæ og yfir í FH en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.
FH hefur fengið öflugan liðsstyrk inn í tímabilið en þær Harpa Helgadóttir og Margrét Brynja Kristinsdóttur eru mættar á láni frá Breiðabliki.
KR hefur fengið til sín unglingalandsliðsmanninn Lúkas Magna Magnason frá Breiðabliki.
Sheffield Utd 2 - 0 West Brom 1-0 Sander Berge ('58 ) 2-0 Anel Ahmedhodzic ('76 )
Eyþór Aron Wöhler er genginn í raðir HK á láni frá Breiðabliki. Hann er kominn með leikheimild og má spila með HK þegar liðið spilar gegn Fylki á heimavelli í 4. umferð Bestu deildarinnar á laugardag. Eyþór er 21 árs framherji sem gekk í raðir Breiðabliks frá ÍA eftir að hafa vakið mikla athygli fyrir sína frammistöðu á síðasta tímabili.
Sigrún Ella Einarsdóttir er mætt aftur í Stjörnuna eftir að hafa spilað síðustu tvö tímabil með FH.
Kýpverska landsliðskonan Marinella Panayiotou er gengin í raðir ÍBV og mun spila með liðinu út þetta tímabil.
Björn Bergmann Sigurðarson hefur samið við uppeldisfélag sitt, ÍA, og mun spila með liðinu á komandi tímabili eftir að hafa spilað erlendis síðustu fimmtán ár.
Máni Austmann Hilmarsson er genginn í raðir Fjölnis og hefur skrifað undir samning við félagið sem gildir út tímabilið 2025. Hann kemur frá FH þar sem hann átti tæplega sjö mánuði eftir af samningi sínum. Það hefur verið líklegt í nokkra daga að Máni væri á förum frá FH og Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, svo gott sem staðfesti það við Fótbolta.net í gær. Nú er ljóst að hann spilar í Lengjudeildinni í sumar.
Pálmi Rafn Pálmason hefur fengið félagaskipti í Völsung og getur því spilað með liðinu í 2. deild í sumar. Pálmi er þaulreyndur leikmaður, uppalinn á Húsavík og kannast því ágætlega við sig í Völsungi. Pálmi lagði skóna á hilluna í fyrra eftir sitt áttunda tímabil með KR.
Varnarmaðurinn Loic Ondo er búinn að fá leikheimild með Vestra og getur hann því spilað með liðinu í sumar.
Oliver Heiðarsson er genginn í raðir ÍBV frá FH. ÍBV kaupir leikmann, hann erkominn með leikheimild og skrifar undir samning út tímabilið 2025. Hann er 22 ára gamall og spilar oftast sem kantmaður. Hann hóf sinn feril á Íslandi hjá Þrótti en gekk í raðir FH fyrir tímabilið 2021. Í 40 deildarleikjum fyrir FH skoraði hann fimm mörk og sjö bikarleikjum skoraði hann tvö mörk.
FH hefur leik í Bestu deildinni í kvöld þegar liðið sækir Þrótt heim í Laugardalnum.
Ólsarar halda áfram að tilkynna endurkomur til félagsins. Í gær var sagt frá því að Þorsteinn Már Ragnarsson hefði tekið skóna af hillunni og rétt í þessu var tilkynnt að Alfreð Már Hjaltalín hefði samþykkt að ganga í raðir félagsins. „Líkt og með Þorstein mun Alfreð ekki geta helgað sig boltanum að fullu í sumar en ljóst að reynsla hans og gæði munu nýtast liðinu í sumar," segir í tilkynningu Ólsara.
Björgvin Stefánsson hefur fengið félagaskipti í Hauka, skiptir yfir til uppeldisfélagsins frá KR þar sem hann lék tímabilin 2018-19 en hann hefur ekki spilað KSÍ leik síðan í mars 2020. Björgvin er 28 ára sóknarmaður sem sagði í viðtali við Fótbolta.net í febrúar að hann ætlaði sér að snúa aftur á völlinn.
Fylkir hefur gengið frá samningi við Þórhildi Þórhallsdóttur og mun hún spila með félaginu í sumar. Þórhildur er að snúa aftur til félagsins eftir að hafa leikið með Fylki áður fyrr. Hún gerir núna samning við félagið sem gildir til ársins 2024, út næsta ár.
Þeir Dwayne Atkinson og Richard King eru gengnir í raðir ÍBV, báðir koma þeir frá heimalandinu Jamaíku. Þeir skrifa undir samninga út tímabilið og er ÍBV með möguleika á að framlengja þá samninga. King er 21 árs gamall varnarmaður sem hefur leikið ellefu landsleiki (samkvæmt Transfermarkt) fyrir Jamaíku og Atkinson er tvítugur sóknarsinnaður miðjumaður sem á þrjá landsleik að baki. Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjálfari Jamaíku. Báðir voru leikmennirnir síðast hjá Cavalier FC í efstu deild á Jamaíku.

Systurnar Bryndís og Arna Eiríksdætur hafa yfirgefið Val á láni en þetta kemur í ljós strax eftir sigur liðsins í fyrsta leiknum í Bestu deildinni gegn Blikum í kvöld.

Þær voru báðar í leikmannahópnum.

Bandaríski sóknarmaðurinn Jamia Fields er búin að fá félagaskipti yfir í Val og mun leika með Íslands- og bikarmeisturunum í sumar.
Þorsteinn Már Ragnarsson hefur tekið skóna af hillunni og ætlar að spila með Víkingi Ólafsvík í sumar. Hann tilkynnti eftir síðasta tímabil  að skórnir væru farnir upp í hillu og hann væri að flytja til Stykkishólms. Þá var hann leikmaður KR.