Fotbolti.net
25.04.23 - 22:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Valur lánaði Bryndísi og Örnu beint eftir leik (Staðfest)

Arna Eiríksdóttir

Arna Eiríksdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Hertz

Systurnar Bryndís og Arna Eiríksdætur hafa yfirgefið Val á láni en þetta kemur í ljós strax eftir sigur liðsins í fyrsta leiknum í Bestu deildinni gegn Blikum í kvöld.

Þær voru báðar í leikmannahópnum.

Miðvörðurinn Arna sem er fædd árið 2002 fer á láni til FH sem er nýliði í Bestu deildinni og leikur sinn fyrsta leik gegn Þrótti á morgun. Arna er komin með leikheimild fyrir leikinn.

Bryndís spilar bæði sem miðjumaður og bakvörður en hún er fædd árið 2005 og mun leika með HK í Lengjudeildinni í sumar en hún lék með KH í 2. deild síðasta sumar. Hún lék 16 leiki og skoraði átta mörk með liðinu sem hafnaði í 6. sæti.

Málfríður Anna Eiríksdóttir elsta systir þeirra leikur einnig með Val en hún lék allan leikinn í kvöld. Þá er Hlín Eiríksdóttir næst elsta systirin en hún leikur með Kristianstad í dag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.