FRÉTTIR31.01.2023, 21:53
Bournemouth er að gera allt sem félagið getur á leikmannamarkaðnum til þess að eiga möguleika á því að halda sér uppi í ensku úrvalsdeildinni.
Fyrr í kvöld keypti félagið úkraínska varnarmanninn Illia Zabarnyi frá Dynamo Kiev.
FRÉTTIR31.01.2023, 21:29
Unglingalandsliðsmarkvörðurinn Jökull Andrésson hefur verið lánaður frá Reading til Stevenage út þessa leiktíð.
FRÉTTIR31.01.2023, 21:19

Naouirou Ahamada hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Crystal Palace en hann kemur til liðsins frá Stuttgart.

FRÉTTIR31.01.2023, 20:42

Óttar Magnús Karlsson er genginn til liðs við Virtus Francavilla Calcio á láni frá Venezia en Virtus leikur í Serie C, þriðju efstu deild á Ítalíu.

FRÉTTIR31.01.2023, 20:41
Bournemouth hefur keypt úkraínska miðvörðinn Illia Zabarnyi frá Dynamo Kiev.
Talið er að kaupverðið sé í kringum 24 milljónir punda og er hann þar með er hann einn dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
FRÉTTIR31.01.2023, 20:11

Portúgalska stórveldið Sporting er búið að festa kaup á Ousmane Diomande, 19 ára miðverði Midtjylland í Danmörku.

FRÉTTIR31.01.2023, 20:10

Ítalski miðjumaðurinn Jorginho er genginn til liðs við Arsenal frá erkifjendunum í Chelsea. Hann gerir eins árs samning við rauða liðið í London.

Kaupverðið er 12 milljónir punda.

FRÉTTIR31.01.2023, 19:53

Thorgan Hazard er genginn til liðs við hollenska liðið PSV á láni frá Dortmund í Þýskalandi.

Eldri bróðir hans er Eden Hazard, leikmaður Real Madrid.
FRÉTTIR31.01.2023, 19:47
Fulham, sem hefur verið að gera gott mót í ensku úrvalsdeildinni, er að vinna hörðum höndum að því að styrkja sig á þessum gluggadegi.
FRÉTTIR31.01.2023, 19:44

Luca Pellegrini er genginn til liðs við Lazio frá Juventus á láni.

FRÉTTIR31.01.2023, 19:23
Leicester hefur lánað spænska sóknarmanninn Ayoze Perez til Real Betis út þessa leiktíð.
FRÉTTIR31.01.2023, 18:54

KA hefur fengið til sín tvo leikmenn frá norska liðinu Viking en það eru þeir Kristoffer Forgaard Paulsen og Ingimar Torbjörnsson Stöle

FRÉTTIR31.01.2023, 17:58

Diego Llorente er genginn til liðs við Roma á láni frá Leeds út þessa leiktíð.

Roma er með forkaupsrétt á leikmanninum næsta sumar og fyrirhugað er að hann gangi alfarið í raðir félagsins.

FRÉTTIR31.01.2023, 17:25

Djed Spence bakvörður Tottenham er genginn til liðs við franska liðið Rennes á láni út tímabilið.

FRÉTTIR31.01.2023, 17:15

Nathaniel Chalobah hefur skrifað undir eins og hálfs árs samning við West Brom.

FRÉTTIR31.01.2023, 17:05

Sergi Canos er genginn til gríska félagsins Olympiakos á láni frá Brentford.

FRÉTTIR31.01.2023, 16:04
SönderjyskE ætlar sér beint aftur upp úr dönsku B-deildinni eftir að hafa fallið úr Superliga á síðasta tímabili.
Danska félagið hefur fengið íslenska U21 árs landsliðsmanninn Orra Stein Óskarsson á láni frá dönsku meisturunum í FCK út tímabilið.
FRÉTTIR31.01.2023, 15:44
Manchester United hefur lánað miðvörðinn Di'Shon Bernard til Portsmouth út tímabilið. Bernard er 22 ára gamall og hefur verið hjá United frá árinu 2019. Hann kom það ár frá Chelsea þar sem hann er uppalinn.
Hann á að baki einn Evrópuleik fyrir United, lék gegn Astana í Evrópudeildinni en varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í 2-1 tapi.
FRÉTTIR31.01.2023, 15:30
Leicester hefur fengið framherjann Nathan Opoku í sínar raðir. Hann lék síðast með liði Syracuse háskólans.
Hann kemur til Leicester eftir að hafa, samkvæmt heimildum Sky Sports, hafnað þeim möguleika að vera fyrsti valmöguleiki í nýliðavalinu fyrir MLS-deildina fyrr á þessu ári.
Opoku er 21 árs gamall og mun klára tímabilið á láni hjá belgíska félaginu OH Leuven. Þar verður hann liðsfélagi íslenska landsliðsmannsins Jóns Dags Þorsteinssonar. Leuven er systurfélag Leicester.
FRÉTTIR31.01.2023, 15:26
Orlando City tilkynnti í dag að félagið hefði fest kaup á íslenska landsliðsmanninum Degi Dan Þórhallssyni.
Orlando kaupir hann af Breiðabliki þar sem hann átti frábært tímabil í fyrra og var einn allra besti leikmaður Íslandsmótsins. Félagið er að vinna í því að Dagur fá atvinnuleyfi og verður hann í kjölfarið hluti af hópnum sem tekur þátt í komandi tímabili í MLS-deildinni.