Fotbolti.net
31.01.23 - 15:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Portsmouth fær Bernard frá Man Utd (Staðfest)

Portsmouth fær Bernard frá Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Portsmouth

Manchester United hefur lánað miðvörðinn Di'Shon Bernard til Portsmouth út tímabilið. Bernard er 22 ára gamall og hefur verið hjá United frá árinu 2019. Hann kom það ár frá Chelsea þar sem hann er uppalinn.

Hann á að baki einn Evrópuleik fyrir United, lék gegn Astana í Evrópudeildinni en varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í 2-1 tapi.
Tímabilið 2020-21 var hann á láni hjá Salford City og á síðasta tímabili var hann hjá Hull.

Núna er hann kominn til Portsmouth og á að reyna hjálpa liðinu að vinna sér inn sæti í Championship deildinni.

Bernard er fæddur á Englandi en er ættaður frá Jamaíka og hefur lýst því yfir að hann hafi áhuga á því að spila með jamíska landsliðinu. Spurning hvort landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson hringi?

England 1. deild - karlar

#LiðLmunStig
1Huddersfield14+1629
2Stockport15+1429
3Oxford United13+1126
4Luton14+624
5Sheff Wed14+1123
6Plymouth15-123
7Reading15+822
8Bradford13+222
9MK Dons14+621
10Cambridge United14021
11Leicester13+319
12Mansfield Town13+219
13Wycombe13-218
14Leyton Orient13+517
15Burton15-717
16Stevenage12+416
17Wimbledon14-1116
18Notts County12-114
19Wigan15-1014
20Blackpool13-512
21Doncaster Rovers13-812
22Peterboro13-1210
23Barnsley13-119
24Bromley13-209
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.