Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25205 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR11.01.2023, 17:30

Sara Mjöll í HK (Staðfest)

HK hefur fengið markvörðurinn Söru Mjöll Jóhannsdóttur í sínar raðir frá Þór/KA og semur hún til tveggja ára. Sara, sem er uppalin í KA, er fædd árið 1998 og hefur allan sinn meistaraflokksferil leikið með Þór/KA eða venslaliðið félagsins, Hömrunum, fyrir utan veturinn 2017 þegar hún varði mark Tindastóls í Lengjubikarnum.

FRÉTTIR11.01.2023, 16:38

Moreno kominn til Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur kynnt Alex Moreno sem nýjan leikmann félagsins en hann kemur frá Real Betis fyrir 13 milljónir punda. Hann varð spænskur bikarmeistari með Betis á síðasta tímabili. Þessi 29 ára gamli Spánverji er fyrsti leikmaðurinn sem Unai Emery kaupir til félagsins. Moreno er vinstri bakvörður sem getur einnig spilað á kantinum. Hann hefur á ferli sínum spilað fyrir Mallorca, Elche og Rayo Vallecano. <i>„Alex er góður leikmaður sem getur hjálpað okkar leikmannahóp. Hann hefur síðustu tímabil verið einn besti vinstri bakvörðurinn í La Liga og við erum hæstánægðir með að fá hann til okkar,"</i> segir Emery. Aston Villa er í ellefta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

FRÉTTIR11.01.2023, 14:18

Samningnum rift í október en verður samt með ÍA í sumar (Staðfest)

Alex Davey hefur samið við ÍA út komandi tímabil. Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag. Þetta vekur athygli þar sem ÍA rifti samningi sínum við <a href="https://www.fotbolti.net/news/31-10-2022/ia-riftir-samningum-vid-erlenda-leikmenn-stadfest" target="_blank">Davey í október</a>. Þá var orðið ljóst að liðið yrði í Lengjudeildinni á komandi tímabili og átti leikmaðurinn ár eftir af gildandi samningi.

FRÉTTIR11.01.2023, 12:17

Joao Felix í Chelsea (Staðfest)

Portúgalski landsliðsmaðurinn Joao Felix er mættur til Chelsea á láni frá Atletico Madrid út leiktíðina.

FRÉTTIR11.01.2023, 09:14

Andri Rúnar yfirgefur ÍBV (Staðfest)

ÍBV hefur staðfest að Andri Rúnar Bjarnason hafi yfirgefið félagið en fjölskylda hans er flutt á höfuðborgarsvæðið. Andri er 32 ára sóknarmaður sem skoraði 10 mörk í 25 leikjum fyrir Eyjamenn á síðasta tímabili. <i>„Tímabilið var skemmtilegt. Það var gaman að ná að snúa við blaðinu svona. Það var kannski búið að dæma okkur eftir fyrri hlutann. Það var gaman að sýna seinni hlutann hversu góðir við værum. Persónulega var það erfitt fyrir mig að byrja seint út af meiðslum og ná upp alvöru formi. Ég get verið sáttur við að skila tíu mörkum á þannig tímabili. Heilt yfir var þetta gott sumar þrátt fyrir erfiða byrjun,"</i> sagði Andri í <a href="https://fotbolti.net/news/05-12-2022/andri-runar-a-forum-fra-ibv-fjolskyldan-flutt-a-hofudborgarsvaedid" target="_blank">viðtali við Fótbolta.net</a> fyrir rúmum mánuði. Í því viðtali sagði Andri frá breyttri stöðu fjölskyldu sinnar og að konan sín væri ólétt.

FRÉTTIR10.01.2023, 16:55

Brookelynn Entz í HK (Staðfest)

HK hefur samið við hina 24 ára gömlu Brookelynn Entz um að leika með liðinu á næsta keppnistímabili. Vart þarf að fjölyrða um hversu gífurlega mikill liðsstyrkur þetta er fyrir HK en miðjumaðurinn kemur til liðsins frá Íslands- og bikarmeisturum Vals. Hjá Val náði Brookelynn ekki að festa sig almennilega í sessi í byrjunarliðinu en tók þó þátt í 14 leikjum á liðnu tímabili og skoraði eitt mark.

FRÉTTIR10.01.2023, 11:55

Kjartan Henry í FH (Staðfest) - Í treyju númer 9

FH hefur staðfest eins árs samning við sóknarmanninn Kjartan Henry Finnbogason sem var félagslaus eftir að hafa yfirgefið KR í fyrra. Kjartan er 36 ára og uppalinn hjá KR. Það var mikið fjaðrafok þegar hann yfirgaf Vesturbæinn. Kjartan fer í treyju númer 9 hjá FH, en Matthías Vilhjálmsson bar það númer áður en hann fór í Víking. Síðasta tímabil var erfitt fyrir FH sem var í fallbaráttu og endaði í 10. sæti Bestu deildarinnar. Liðið komst í bikarúrslit en tapaði þar fyrir Víkingi.

FRÉTTIR10.01.2023, 06:00

Telma Sif í Gróttu (Staðfest)

<p>Telma Sif Búadóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu en hún lék með liðinu á láni frá Víkingi í sumar.</p>

FRÉTTIR09.01.2023, 18:39

Gunnlaugur Fannar til Keflavíkur (Staðfest)

<p>Keflavík hefur nælt í sinn fyrsta leikmann fyrir átökin í Bestu deildinni næsta sumar. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson hefur gert tveggja ára samning við félagið.</p>

FRÉTTIR09.01.2023, 15:27

Gareth Bale leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Gareth Bale, fyrirliði velska landsliðsins, hefur tilkynnt að fótboltaferli hans sé lokið. Bale er 33 ára og hefur ákveðið að láta gott heita. Bale er fyrrum leikmaður Tottenham og Real Madrid en hann lék síðast fyrir LAFC og varð bandarískur meistari með félaginu. <i>„Eftir vandlega og ítarlega umhugsun tilkynni ég hér með að ég hef ákveðið að hætta fótboltaiðkun. Ég tel mig ákaflega heppinn að hafa upplifað draum minn að spila íþróttina sem ég elska. Hún hefur gefið mér nokkrar af bestu stundum lífs míns,"</i> segir Bale í yfirlýsingu sinni.

FRÉTTIR09.01.2023, 12:31

Martínez nýr þjálfari Portúgals (Staðfest)

Spánverjinn Roberto Martínez hefur verið staðfestur sem nýr landsliðsþjálfari Portúgals. Martínez, sem gerir þriggja og hálfs árs samning, hætti sem landsliðsþjálfari Belgíu eftir að liðinu mistókst að komast upp úr riðli sínum á HM í Katar. Þessi fyrrum stjóri Everton og Wigan var ráðinn þjálfari Belga 2016. Undir hans stjórn endaði Belgía í þriðja sæti á HM 2018 en liðið var í öðru sæti á FIFA listanum þegar það kom inn í HM í Katar. Fernando Santos lét af störfum eftir að portúgalska liðið tapaði gegn Marokkó í 8-liða úrslitum HM. Martínez fær að glíma við það verkefni að takast á við vandamálin sem fylgja Cristiano Ronaldo en í viðtali á síðasta ári talaði Martínez um það að árin væru farin að hafa áhrif á Ronaldo og frammistaða leikmannsins færi dalandi.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.