Fotbolti.net
01.07.26 - 10:53
Kári Snorrason

Ákvörðunin að koma heim erfið - „Verður stutt stopp neðarlega í deildinni“

Auglýsing
Skrifaði undir þriggja ára samning við fimleikafélagið.

Skrifaði undir þriggja ára samning við fimleikafélagið.

Canon

Mynd: FH

Oliver Stefánsson gekk til liðs við FH á dögunum eftir að hafa rift samningi sínum við pólska félagið GKS Tychy.

Oliver, sem er 24 ára varnarmaður skrifaði undir þriggja ára samning við fimleikafélagið. Hann gekk til liðs við pólska félagið fyrir um ári síðan frá uppeldisfélaginu ÍA.

Hann gerði sér leið upp á skrifstofu Fótbolta.net í morgunsárið og ræddi um skrefið til FH.
Oliver Stefánsson í FH (Staðfest)
TENGT EFNI

Oliver Stefánsson í FH (Staðfest)

„Ég var staddur í fríi og Jói hringir í mig, ég þekki hann vel auðvitað, hann seldi mér verkefnið. Það hljómaði vel og þetta gekk nokkuð hratt fyrir sig eftir það,“ segir Oliver.

Hvers vegna riftiru út í Póllandi?
„Liðið féll og félagið vildi losna við leikmenn. Ég held að 80% af hópnum er farinn, ef ekki fleiri. Þeir vildu byggja upp á nýtt og ég hafði ekki áhuga á að fara niður um deild í Póllandi. Þá var bara besta lausnin að rifta,“ segir Oliver. Hann var í stóru hlutverki fyrri hluta tímabils en eftir þjálfarabreytingar um miðbik móts varð rullan minni.

Ákvörðunin að koma heim erfið
„Ég var með möguleika úti sem ég skoðaði. Mér fannst best á þessu stigi ferilsins að koma aftur heim,“ segir Oliver. Hann segir jafnframt ákvörðunina að koma heim hafa verið erfiða. „Nei, hún var ekki auðveld. Þetta var bæði og, ég hef gaman að því að vera úti. Mér fannst þetta rétt skref á þessum tímapunkti.“

Voru fleiri lið á Íslandi inni í myndinni?
„Ég heyrði í fleiri liðum en FH en mér leist best á FH í þetta skiptið.“

Önnur lið hleruðu en FH heillaði mest
Oliver segir fleiri lið á Íslandi hafa heyrt í sér en honum hafi litist best á FH. „Fyrst og fremst var það Jói. Ég þekki hann mjög vel og veit hvernig fótbolta hann vill spila. Mér leist vel á þetta og verkefnið sem er í gangi þarna.“

Stigasöfnun fimleikafélagsins á tímabilinu hefur ekki verið upp á marga fiska. Liðið er með sjö stig eftir 12 umferðir og situr í 11. sæti deildarinnar. Oliver segir stöðuna í deildinni ekki hafa fælt sig frá félaginu.

„Nei, FH er það stór klúbbur. Ég ólst upp við að sjá FH sem besta lið landsins. Ég hef engar áhyggjur af þessu, þetta verður stutt stopp neðarlega í deildinni.“

Bíður spenntur eftir leikheimildinni
Oliver hefur spilað sem bæði hafsent og varnarsinnaður miðjumaður. Sjálfur vill hann spila í vörninni þar sem hann er hafsent að upplagi.

Oliver hefur verið á köflum lengi frá á ferlinum en segir líkamann í góðu standi núna. „Staðan er mjög fín. Ég er búinn að vinna með Ben, styrktarþjálfara FH, það gengur mjög vel. Leikformið á eftir að koma en kemur með leikjunum.“

Glugginn opnar 16. júlí og fær Oliver fyrst leikheimild þá. Fyrsti leikurinn sem Oliver getur spilað verður gegn sínum gömlu félögum í Breiðabliki þann 20. júlí.

„Ég get ekki beðið eftir því. Ég skil ekki alveg hvers vegna er svona langt í leikheimildina. Það er eins og það er, ég bíð bara spenntur eftir því og styð liðið uppi í stúku þangað til,“ segir Oliver að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Uppalinn Skagamaður.

Uppalinn Skagamaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Segir Jóa hafa selt sér verkefnið.

Segir Jóa hafa selt sér verkefnið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gæti mætt sínum gömlu félögum í Breiðabliki í fyrsta leik.

Gæti mætt sínum gömlu félögum í Breiðabliki í fyrsta leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH er í 11. sæti deildarinnar.

FH er í 11. sæti deildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.