Fotbolti.net
16.10.26 - 09:44
Elvar Geir Magnússon

Meiðslamartröð James ætlar engan enda að taka

Reece James hefur gengist undir aðgerð.

Reece James hefur gengist undir aðgerð.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea hefur tilkynnt að fyrirliðinn Reece James hafi gengist undir aðgerð vegna hnémeiðsla. Þessi 26 ára varnarmaður meiddist á æfingu fyrir 5-1 sigur Chelsea á Bournemouth um síðustu helgi.

Enginn tímarammi hefur verið gefinn út um hvenær búast megi við James aftur út á völlinn.
James hefur glímt við ýmis meiðsli undanfarin tímabil, sem hafa orðið til þess að hann hefur misst af stórmótum með enska landsliðinu.

Hann gegndi þó lykilhlutverki í liði Englands á heimsmeistaramótinu í sumar þar sem liðið komst í undanúrslit og vann leikinn um bronsverðlaunin.

James var einn þeirra leikmanna sem drógu sig úr landsliðshópi Englands í síðasta landsleikjaglugga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.