01.11.26 - 23:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Iraola: Synd að við þurfum að segja leikmönnum að dýfa sér

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Liverpool tapaði 1-0 gegn Arsenal í kvöld en liðið fékk fín tækifæri en vörn Arsenal var stórkostleg. Andoni Iraola var sáttur með spilamennskuna.

TENGT EFNI
Van Dijk ósáttur: Það eru fimmtíu myndavélar hérna
„Svekkjandi fyrir okkur. Við áttum klárlega skilið að skora en gátum það ekki. Við sjáum eftir fyrstu 15 mínútunum þangað til við fáum á okkur mark en elskuðum þetta eftir það. Við breyttum aðeins og vorum hugrakkari og aggressívari og settum þá undir pressu. Við fengum fleiri færi en kláruðum ekki almennilega. Þeir voru líka góðiir varnarlega," sagði Iraola.
Liverpool vildi fá vítaspyrnu þegar Jurrien Timber togaði í Alexander Isak þegar hann var við það að ná til boltans í dauðafæri.
„Vítið hjá Alexander Isak var mjög augljóst. Það sáu það allir að hann reif í hann. Ég skil þetta ekki, ég held að það sé af því hann dýfir sér ekki. Það er synd að við þurfum að segja leikmönnum að dýfa sér. Þetta er svo augljóst og þetta var frábært tækifæri fyrir okkur," sagði Iraola.
Noni Madueke fékk ekki áminningu fyrir að fara haus í haus við Alexis Mac Allister en Madueke var þá á gulu spjaldi.
„Ég sá bara eina endursýningu. Það þarf að vera augljósari hreyfing til að vera rautt spjald. Þetta var ekki augljóst rautt spjald," sagði Iraola.