01.11.26 - 15:54
Brynjar Ingi Erluson
Ída Marín og Guðrún báðar á skotskónum í stórsigri

Ída gerði annað markið

Mynd: Hammarby

Guðrún skoraði fyrsta mark Hammarby

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ída gerði annað markið

Mynd: Hammarby

Ída Marín Hermannsdóttir og Guðrún Arnardóttir voru báðar á skotskónum í 7-0 stórsigri Hammarby á Uppsala í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Íslensku landsliðskonurnar voru báðar á skotskónum í fyrri hálfleik, en Guðrún kom Hammarby yfir á 13. mínútu áður en Ída Marín tvöfaldaði forystuna á 30. mínútu.
Með sigrinum komst Hammarby í 59 stig og er liðið nú fimm stigum á eftir Häcken, sem getur tryggt sér meistaratitilinn með sigri á Kristianstad á morgun.
Selma Sól Magnúsdóttir kom við sögu í stórsigri Rosenborg á Roa, 6-0, í norsku úrvalsdeildinni.
Selma hefur verið að fá mínútur af varamannabekknum eftir að hafa verið frá keppni um tíma vegna meiðsla og lék hún síðustu tuttugu mínúturnar í stórsigri Rosenborg í dag.
Rosenborg situr í þriðja sæti deildarinnar með 45 stig og hefur þegar tryggt sér sætið, sem veitir liðinu þátttökurétt í Evrópubikarinn á næsta tímabili.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir lék síðustu mínúturnar með Bröndby sem vann 2-0 sigur á OB í dönsku úrvalsdeildinni. Bröndby er í þriðja sæti með 24 stig.
Þá kom Hildur Antonsdóttir inn á undir lok leiks í 5-1 stórsigri Newcastle United á Durham í enska deildabikarnum. Þetta var fyrsti sigur Newcastle í keppninni á tímabilinu.