Fotbolti.net
01.11.26 - 19:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Van Dijk ósáttur: Það eru fimmtíu myndavélar hérna

Van Dijk ósáttur: Það eru fimmtíu myndavélar hérna
Canon

Mynd: EPA

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, var ósáttur eftir 1-0 tap Liverpool gegn Arsenal í kvöld.

Liverpool vildi fá vítaspyrnu þegar Jurrien Timber reif í Alexander Isak og kom í veg fyrir að hann gæti skallað boltann í dauðafæri.
„Ég hef séð dæmt á svona en þetta átti ekki að gerast í dag. Sér VAR þetta ekki? Það eru fimmtíu myndavélar hérna, jafnvel fleiri," sagði Van Dijk.

Talað hefur verið um að Isak hafi ekki kvartað nægilega mikið yfir þessu við dómarann.

„Af hverju þarf hann að kvarta þegar það eru svona margar myndavélar. Það sjá þetta allir. Að lokum fengum við ekki víti og töpuðum því miður, vel gert Arsenal."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.