Kennie Chopart leikmaður Fram hefur verið valinn leikmaður maímánaðar í Bestu deild karla.
Hann hlaut um 37% atkvæða í kosningu sem var á forsíðu Fótbolta.net en hægt var að kjósa á milli sex leikmanna sem tilnefndir voru af sérstakri valnefnd.
Kosningin endaði sem æsispennandi einvígi Kennie og Óskars Borgþórssonar, leikmanns Víkings, en þar hafði Kennie betur.

Niðurstaðan í kosningunni var kynnt í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag.
Kennie sem er 35 ára eldist betur en gott rauðvín. Geggjaður bæði varnar- og sóknarlega. Skoraði fimm mörk í maí og var þrisvar í liði umferðarinnar.
Hver er leikmaður maímánaðar í Bestu deildinni?
37,23% Kennie Chopart, Fram (850)
35,52% Óskar Borgþórsson, Víkingur (811)
12,31% Luke Rae, KR (281)
5,39% Kristófer Ingi Kristinsson, Breiðablik (123)
5,04% Fred, Fram (115)
4,51% Gunnar Vatnhamar, Víkingur (103)