Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. ágúst 2021 07:30
Victor Pálsson
Líkir ungstirni Liverpool við Iniesta og Xavi
Mynd: Getty Images
Jason McAteer, fyrrum leikmaður Liverpool, hefur líkt leikmanni liðsins við goðsagnirnar Xavi og Andres Iniesta sem gerðu garðinn frægan með Barcelona.

Leikmaðurinn umtalaði er Harvey Elliott en hann kom til Liverpool frá Fulham árið 2019 þá aðeinx 16 ára gamall.

Síðan þá hefur Elliott fengið nokkur tækifæri með aðalliði Liverpool og gæti spilað hlutverk á komandi tímabili.

McAteer er mjög hrifinn af þessum strák og líkir honum við þessa tvo sem voru frábærir saman á sínum tíma.

„Hans besta staða er milljón dollara spurningin. Ég sé Xavi og Iniesta í honum," sagði McAteer við LFC TV.

„Ég sé líka smá Tiago í honum, hann er að þróast í það. Þegar ég segi þetta þá sé ég leikmann sem getur gefið boltann og er þægilegur á boltanum."

„Hann vill alltaf vera með boltann og horfir í kringum sig til að koma hlutum af stað."

Athugasemdir
banner
banner
banner