Fotbolti.net
19.09.26 - 19:25
Sölvi Haraldsson

Úr 2. deildinni upp í Bestu deildina: Svo skorum við eitt flottasta mark sumarsins

Auglýsing
Úr 2. deildinni upp í Bestu deildina: Svo skorum við eitt flottasta mark sumarsins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
„Þetta er ólýsanlegt. Allar góðu tilfinningarnar eru að koma að manni eftir að leikurinn var flautaður af. Maður er bara að njóta með fólkinu hérna sem er búið að styðja okkur í fleiri ár, þetta er bara geggjað.“ sagði Baldur Hannes Stefánsson, fyrirliði Þróttar, eftir að Þróttur tryggði sætið sitt í efstu deild með 1-0 sigri á Fylki á Laugardalsvelli í dag.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Fylkir
Venni, þjálfari Þróttar, sagði í aðdraganda leiksins að brandarastimpillinn sem væri á Þrótti er ekki til staðar lengur, Baldur var spurður út í þessi ummæli Venna.

„Ég er náttúrulega búinn að upplifa þetta allt eftir að hafa byrjað snemma með meistaraflokknum og fyrir mér hefur þetta aldrei verið brandaraklúbbur. En það er rétt hjá Venna að fagmennskan í kringum félagið og við erum að uppskera samkvæmt því.“

Er Baldur eitthvað farinn að hugsa út í hvað honum langar að gera í Bestu deildinni?

„Nei. Það var bara þetta verkefni í dag. Svo byrjar nýtt verkefni á morgun að undirbúa sig fyrir Bestu deildina.“

Hvernig sér Baldur þennan úrslitaleik þegar hann lítur um öxl?

„Mér leið vel allan leikinn. Sérstaklega í fyrri hálfleik. Mér fannst við byrja betur en Fylkir en þeir koma svo sterkir út í seinni hálfleikinn. Við verjumst svo bara mjög vel og skorum svo eitt flottasta mark sumarsins, ég er mjög sáttur.“ sagði Baldur en viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.