Fotbolti.net
20.09.26 - 12:26
Brynjar Ingi Erluson

Valinn í landsliðið en síðan sparkað út fyrir ummæli frá 2018

Valinn í landsliðið en síðan sparkað út fyrir ummæli frá 2018
Canon

Mynd: Troyes

Landsliðsferill markvarðarins Zacharie Boucher með Madagaskar varð ekki langlífur, en honum var sparkað úr hópnum aðeins tveimur dögum eftir að hann var valinn í landsliðið í fyrsta sinn.
Boucher er 34 ára, fæddur og uppalinn í Frakklandi og leikur með Troyes í efstu deild þar í landi.

Hann á að baki fjölda landsleikja með yngri landsliðum Frakklands en á einnig rætur að rekja til Madagaskar og gat því skipt um landslið.

Á dögunum var hann valinn í landslið Madagaskar í fyrsta sinn, en fótboltasambandið ákvað að senda hann heim aðeins tveimur dögum síðar vegna ummæla sem hann lét falla árið 2018.

„Ég er Frakki og hef aldrei verið Madagaskari. Ég veit ekki af hverju þetta var sett svona fram því það þarf bara að horfa á vegabréfið mitt og þar stendur að ég sé franskur. Ef þjálfarinn hringir í mig þá er svarið nei.“

„Franska landsliðstreyjan er mér mikilvæg og ég mun ekki klæðast annarri treyju en henni. Ég er stoltur Frakki og hef engan áhuga á því að spila í Afríkukeppninni með annarri þjóð,“
sagði Boucher árið 2018.

Ummælin komu á borð fótboltasambandsins skömmu eftir að hann var valinn í hópinn. Boucher átti að vera með gegn Nígeríu og Tansaníu í forkeppni Afríkukeppninnar, en sambandið ákvað í kjölfarið að taka hann úr hópnum.

„Í kjölfar fundar innan sambandsins var þjálfarinn látinn vita af ummælum sem Zacharie Boucher lét falla í viðtali fyrir nokkrum árum, á þeim tíma þegar hann vissi ekki að hann gæti spilað fyrir landslið Madagaskar.“

„Eftir samtöl við alla aðila var ákveðið að hafa hann ekki með í hópnum fyrir næsta verkefni,“
segir í yfirlýsingu sambandsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.