„Við áttum góðan leik þegar við spiluðum á móti þeim áður og þekkjum þær vel. Við erum klárar í þetta," sagði landsliðskonan Linda Líf Boama í viðtali við Fótbolta.net í Kraká í Póllandi í dag. Framundan er mikilvægur leikur gegn Úkraínu í undankeppni HM. Fer hann fram í Mielec, sem er í tæplega tveggja klukkustunda fjarlægð frá Kraká þar sem liðið hefur æft fyrir leikinn.
Það er mikið undir í leiknum sem framundan er, má búast við miklu stressi?
„Kannski bara hollt stress. Við erum allar á sömu blaðsíðu og erum gíraðar í þennan leik."
Alltaf mikill heiður
Linda kom inn í síðasta landsliðshóp og spilaði þá sína fyrstu leiki með A-landsliðinu.
„Ég mun aldrei segja að þetta sé sjálfsagður hlutur, það er alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali. Núna er þetta verkefni númer tvö og ég er búin að kynnast stelpunum aðeins betur. Mér líður mjög vel hérna."
„Þetta er ótrúlega mikill heiður. Núna er ég bara að hugsa um nýliðavígsluna. Það er atriði á eftir. Það er ekkert stress, ég er bara spennt og þetta verður gaman. Ég er tilbúin."
Nýliðavígslan fer fram í kvöld og hún verður í formi hæfileikakeppni. „Þetta verður hæfileikakeppni og það er nóg af hæfileikum í þessu liði," sagði Linda létt en hún vildi ekkert gefa upp með sitt atriði.
„Það er leyndarmál fram á kvöldið," sagði þessi öflugi leikmaður og bætti við: „Það er alltaf gaman en við gleymum ekki markmiðinu, við erum hérna til að gera vel á æfingum og leikjum. En það er mjög skemmtilegt að vera í svona skemmtilegum hóp."
Linda hefur verið að gera frábæra hluti í sænska boltanum að undanförnu en viðtalið við hana má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.























