Fotbolti.net
03.07.26 - 11:05
Kári Snorrason

Hefur ekki áhyggjur af eigin stöðu - „Stjórn KA veit hvaða mann ég hef að geyma“

„Ef þeir telja einhvern annan vera betri í stöðuna þá er það bara þeirra ákvörðun.“

„Ef þeir telja einhvern annan vera betri í stöðuna þá er það bara þeirra ákvörðun.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA tapaði á dramatískan hátt í gær gegn Íslandsmeisturum Víkings. Hafandi verið í 2-1 forystu misstu KA niður forskot sitt og skoraði Gylfi Þór Sigurðsson sigurmark leiksins úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

KA situr í 10. sæti deildarinnar með tíu stig og var tap gærkvöldsins var það sjötta í röð. Hallgrímur Jónasson, þjálfari liðsins, var spurður í viðtali eftir leik hvort hann hefði áhyggjur af sinni eigin stöðu sem þjálfari liðsins.
Besta deildin: Víkingur með ellefu stiga forystu eftir dramatíska endurkomu
TENGT EFNI

Besta deildin: Víkingur með ellefu stiga forystu eftir dramatíska endurkomu

„Nei, ég hef ekki áhyggjur af eigin stöðu. Maður er bara svekktur, við erum sárir að vera þarna. Stjórn KA veit nákvæmlega hvaða mann ég hef að geyma og hvernig þjálfari ég er.“

„Ef þeir telja einhvern annan vera betri í stöðuna þá er það bara þeirra ákvörðun. En við höfum staðið saman og þeir hafa staðið við bakið á mér undanfarin ár, bæði þegar gengur vel og illa,“
sagði Haddi að lokum.
KA tapað sex í röð.

KA tapað sex í röð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver líklega brotinn - „Svekkjandi að missa hann í langtímameiðsli"

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.