Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
banner
   fim 04. júní 2026 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Man City og Bayern fylgjast áfram með bakverði Feyenoord
Mynd: EPA
Þýskalandsmeistarar FC Bayern og enska stórveldið Manchester City eru að fylgjast með hollenska bakverðinum Givairo Read.

Givairo er tvítugur hægri bakvörður sem getur einnig spilað vinstra megin. Hann hefur verið að berjast um sæti í sterku byrjunarliði Feyenoord sem endaði í öðru sæti hollensku deildarinnar á nýliðnu tímabili.

Hann er með 26 leiki að baki fyrir yngri landslið Hollands og hafa stórveldin verið að fylgjast með honum í dágóðan tíma.

Givairo fagnaði tvítugsafmæli á dögunum eftir að hafa komið með beinum hætti að 5 mörkum í 20 leikjum á nýliðnu tímabili.

   22.11.2025 10:00
Man City blandar sér í baráttuna um ungan Hollending

Slapp
banner