04.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í U17 og skrifar undir hjá Blikum


Mynd: Breiðablik


Mynd: Breiðablik
Óðinn Sturla Þórðarson er búinn að skrifa undir sinn fyrsta samning við meistaraflokk Breiðabliks en hann er aðeins 16 ára gamall.
Óðinn Sturla leikur með 2. og 3. flokki félagsins og er með tólf leiki að baki fyrir U16 og U17 landsliðin. Hann mun bæta fleiri landsleikjum við eftir að hafa verið valinn í landsliðshóp U17 sem leikur í undankeppni Evrópumótsins síðar í september.
Óðinn kom við sögu í einum leik með meistaraflokki Blika í vor þegar liðið mætti til leiks í Lengjubikarnum.
Óðinn kom við sögu í einum leik með meistaraflokki Blika í vor þegar liðið mætti til leiks í Lengjubikarnum.
