03.09.26 - 20:59
Ívan Guðjón Baldursson
Orri fékk 70 mínútur - Cagliari úr leik á heimavelli

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliði Real Sociedad sem tók á móti Celta Vigo í eina leik kvöldsins í efstu deild spænska boltans.
Orri byrjaði fremstur með fyrirliðann Mikel Oyarzabal fyrir aftan sig en þeim félögunum tókst ekki að skora. Takefusa Kubo fékk besta færi Sociedad en skóflaði boltanum yfir úr algjöru dauðafæri.
Hvorugu liði tókst að skora á Anoeta leikvanginum svo leiknum lauk með markalausu jafntefli. Sociedad var sterkara liðið og átti mikið af marktilraunum í fyrri hálfleik en boltinn rataði ekki í netið. Seinni hálfleikurinn var tíðindalítill.
Sociedad er með fjögur stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar á nýju tímabili. Celta er með tvö stig.
Þá fóru tveir leikir fram í ítalska bikarnum þar sem Palermo skoraði fimm gegn Mantova áður en Cagliari tapaði óvænt á heimavelli.
Finninn Joel Pohjanpalo var hetja Palermo, hann kom inn af bekknum og setti tvennu til að útkljá viðureignina. Palermo heimsækir Bologna í 16-liða úrslitum.
Cagliari fékk Verona, sem leikur í Serie B eftir fall í vor, í heimsókn og lenti undir í fyrri hálfleik.
Heimamenn jöfnuðu snemma í síðari hálfleik en gestirnir frá Verona gerðu sigurmarkið undir lokin í Sardiníu.
Það ríkti nokkuð jafnræði með liðunum en gestirnir nýttu færin sín betur og heimsækja AS Roma í næstu umferð.
Real Sociedad 0 - 0 Celta Vigo
Palermo 5 - 2 Mantova
1-0 Gabriel Strefezza ('9 )
2-0 Antonio Palumbo ('45+6, víti )
2-1 F. Ruocco ('52 )
2-2 R. Kouda ('55 )
3-2 Joel Pohjanpalo ('70 )
4-2 Dennis Johnsen ('89)
5-2 Joel Pohjanpalo ('95)
Cagliari 1 - 2 Verona
0-1 A. Harroui ('23 )
1-1 P. Mendy ('57 )
1-2 S. Mulattieri ('87 )