Fotbolti.net
03.09.26 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Franski boltinn

Vill sjá Ruiz eða Dembélé vinna Ballon d'Or

Vill sjá Ruiz eða Dembélé vinna Ballon d'Or
Canon

Mynd: EPA

Luis Enrique, þjálfari Paris Saint-Germain, telur að einn af sínum lærlingum verðskuldi Ballon d'Or verðlaunin eftir að hafa unnið Meistaradeild Evrópu og frönsku deildina tvö ár í röð.
Dembele vann Ballon d'Or: Sjáðu hans bestu mörk á síðasta tímabili
TENGT EFNI

Dembele vann Ballon d'Or: Sjáðu hans bestu mörk á síðasta tímabili

Ousmane Dembélé vann í fyrra eftir að hafa hjálpað PSG til sigurs í Meistaradeildinni en í ár er meiri barátta um efsta sætið útaf heimsmeistaramótinu frá því í sumar. Þar stóð Spánn uppi sem sigurvegari en Fabián Ruiz var eini leikmaður landsliðsins sem var samningsbundinn PSG á þeim tíma.

„Mér er sama hver vinnur Ballon d'Or en að mínu mati ætti það að vera leikmaður Paris Saint-Germain. Við höfum unnið Meistaradeildina tvö ár í röð með heimsmeistarann Fabián Ruiz innanborðs og Ousmane Dembélé sem vann verðlaunin í fyrra," sagði Enrique.

„Þannig að mínu mati ætti leikmaður PSG að vinna verðlaunin í ár. Þetta er mín skoðun og hún þarf ekki að vera rétt, mér er yfir höfuð sama um einstaklingsverðlaun. Það mikilvæga er að sigra sem liðsheild."

Fabián Ruiz kom við sögu í öllum leikjunum er Spánn varð heimsmeistari í sumar. Hann var í byrjunarliðinu fjóra leiki af átta á HM, þar á meðal í 8-liða úrslitum, undanúrslitum og úrslitaleiknum.
Vill sjá Ruiz eða Dembélé vinna Ballon d'Or
Canon

Mynd: EPA

Vill sjá Ruiz eða Dembélé vinna Ballon d'Or
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.