Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
banner
   fim 05. mars 2026 21:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Atli Þór í Fram (Staðfest)
Mynd: Fram
Atli Þór Jónasson er genginn til liðs við Fram á láni frá Víkingi. Hann var eftirsóttur en Fram hefur unnið baráttuna.

Atli gekk til liðs við Víking frá HK fyrir síðasta tímabil en hann hafði spilað með HK í Bestu deildinni 2023 og 2024. Hann náði hins vegar ekki að festa sig í sessi hjá Víkingi en hann kom við sögu í ellefu deildarleikjum og skoraði eitt mark.

Hann er 23 ára gamall en hann á samtals að baki 102 leiki í meistaraflokki og hefur skorað 35 mörk.

„Við bjóðum Atla hjartanlega velkominn í Fram og hlökkum til að sjá hann í bláu treyjunni." Segir í tilkynningu frá Fram.


Athugasemdir
banner
banner