24.10.26 - 17:03
Kári Snorrason
Lárus Orri lætur af störfum hjá ÍA (Staðfest)

Stýrði sínum síðasta leik með liðið áðan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus Orri Sigurðsson hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net látið af störfum sem þjálfari ÍA.
Síðasta leik hans sem þjálfari liðsins var að ljúka er ÍA og Keflavík gerðu 4-4 jafntefli inni í Akraneshöllinni. Liðið endaði í 4. sæti deildarinnar á þessu tímabili.

Lárus tók við liðinu um mitt síðasta mót þegar liðið var í botnsæti deildarinnar og náði hann að bjarga liðinu frá falli.
Heimir Guðjónsson hefur verið sterklega orðaður við starfið á Akranesi og hefur félagið rætt við hann.
Heimir er samningsbundinn Fylki og þyrfti ÍA að greiða til að fá hann á Skagann. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru kröfur Fylkis óraunhæfar.
Tilkynning ÍA
Lárus Orri Sigurðsson kveður ÍA
Knattspyrnufélag ÍA og Lárus Orri Sigurðsson hafa komist að samkomulagi um að Lárus Orri láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu. Lárus Orri tók við þjálfun liðsins á síðasta ári og hefur stýrt því undanfarin tvö keppnistímabil. Á þeim tíma hefur liðið náð góðum árangri, samhliða því sem unnið hefur verið að áframhaldandi uppbyggingu þess og þróun ungra leikmanna í samræmi við stefnu félagsins.
Eggert Herbertsson, formaður ÍA: „Við erum Lárusi Orra afar þakklát fyrir hans framlag til ÍA undanfarin tvö ár. Hann tók við liðinu við krefjandi aðstæður og tókst strax að snúa gengi liðsins við og tryggja sæti okkar í efstu deild. Í ár byggði hann svo ofan á þann árangur og skilaði félaginu í 4. sæti og besta árangri þess í 19 ár. Lárus Orri hefur sýnt stefnu félagsins mikinn skilning og unnið markvisst að því að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri til að vaxa og þróast.
Lárus Orri hefur lagt mikinn metnað í starfið og átt mjög góð samskipti við leikmenn, starfsfólk og aðra innan félagsins. Hann skilur við liðið á góðum stað og getur verið stoltur af því starfi sem hann hefur skilað. Fyrir hönd ÍA vil ég þakka Lárusi Orra kærlega fyrir samstarfið, hans mikla framlag og þann árangur sem náðst hefur. Við óskum honum alls hins besta í þeim verkefnum sem taka við.“
Lárusi Orra Sigurðssyni:
„Það hefur verið mikill heiður að þjálfa meistaraflokk karla hjá ÍA og er ég þakklátur fyrir að hafa fengið þetta tækifæri. Ég geng afar stoltur frá borði eftir þessa 16 mánuði. Þetta hefur verið viðburðaríkur og lærdómsríkur tími sem ég tek með mér fullt af góðum minningum úr.
Ég vil sérstaklega þakka þjálfurum og leikmönnunum fyrir þeirra framlag, traust og alla vinnuna sem við höfum lagt í þetta saman. Það hefur verið ánægjulegt að fá að vinna með þessum frábæra hópi og sjá hann vaxa og þróast. Ég vil einnig þakka öðru starfsfólki félagsins og öllum þeim sem hafa lagt okkur lið á þessum tíma. Ég mun svo sannarlega fylgjast með ÍA og þessum flottu strákum á komandi árum og óska þeim alls hins besta.“