Fotbolti.net
25.10.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Kane um Ballon d'Or: Væri þægilegt að vita niðurstöðuna fyrirfram

Kane um Ballon d'Or: Væri þægilegt að vita niðurstöðuna fyrirfram
Canon

Mynd: EPA

Harry Kane, landsliðsfyrirliði Englands og einn af bestu fótboltamönnum heims, er spenntur fyrir verðlaunaafhendingu Ballon d'Or sem fer fram í London annað kvöld.
Gerrard: Mögulega besti fótboltamaður í sögu Englands
TENGT EFNI

Gerrard: Mögulega besti fótboltamaður í sögu Englands

Hann viðurkennir að það væri þægilegt að vita niðurstöðuna fyrirfram en skilur að skipuleggjendur vilji halda þeim leyndum til að tryggja mætingu hinna ýmsu stórstjarna sem eru að berjast um verðlaunin.

Kane er að berjast við menn á borð við Lamine Yamal, Kylian Mbappé og Khvicha Kvaratskhelia um verðlaunin í ár.

„Fjölskyldan mín er mjög stressuð. Ég veit að eiginkonan myndi helst vilja vita niðurstöðuna núna," sagði Kane og glotti. „Ég skil að France Football (skipuleggjendur Ballon d'Or) vilji halda þessu leyndu svo allar stórstjörnurnar mæti á svæðið, en frá mínu sjónarhorni væri þægilegra að vita niðurstöðuna fyrirfram.

„Ég efast ekki um að ég muni njóta kvöldsins sama hvernig fer."
Kane um Ballon d'Or: Væri þægilegt að vita niðurstöðuna fyrirfram
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.