Jacob Ramsey var vikið af velli í leik Newcastle og Manchester United í gær. Ramsey, sem er leikmaður Newcastle, fékk sitt annað gula spjald undir lok fyrri hálfleiks þegar hann féll til jarðar inn á vítateig Man Utd. Peter Bankes, dómari leiksins, mat sem svo að Ramsey hefði verið að reyna fiska víti og lyfti gula spjaldinu. Ramsey hafði fengið gult spjald fyrr í leiknum, og því fékk hann að líta rauða spjaldið.
Ramsey féll til jarðar en bað ekki um neitt. Bankes tók sér smá tíma áður en hann rak Ramsey af velli. Þar sem um seinna gula spjaldið var að ræða, en ekki beint rautt, þá gat VAR ekki sagt til um hvort að Ramsey væri að brjóta reglur leiksins.
Ramsey féll til jarðar en bað ekki um neitt. Bankes tók sér smá tíma áður en hann rak Ramsey af velli. Þar sem um seinna gula spjaldið var að ræða, en ekki beint rautt, þá gat VAR ekki sagt til um hvort að Ramsey væri að brjóta reglur leiksins.
Eddie Howe, stjóri Newcastle, var ekki ánægður með ákvörðun dómarans. „Mér fannst þetta mjög vafasöm ákvörðun. Mér fannst Jacob ekki fara niður til að reyna svindla eða plata dómarann á einhvern hátt. Hann kannski bjóst við snertingu. Hún kom ekki og hann missti jafnvægið. Þú þarft að hugsa þig vel um áður en þú breytir leiknum eins og dómarinn gerði þarna. Hann eyðilagði leikinn á þann hátt að hann varð ekki eins áhorfs, en við náðum úrslitunum sem við vildum. En leikurinn varð mun hægari. Mér fannst þetta léleg ákvörðun."
Atvikið átti sér stað í stöðunni 0-0 en Newcastle vann leikinn 2-1 með sigurmarki frá William Osula undir lokin.
Þetta eru ekki einu stóru mistök sem Bankes gerir í leik hjá Newcastle á þessu tímabili. Það er í það minnsta skoðun félagsins sem hefur kvartað til PGMOL í von um svör. Bankes dæmdi leik Newcastle og Chelsea þar sem Newcastle vildi fá vítaspyrnu þegar Trevoh Chalobah ýtti Anthony Gordon í jörðina inn á vítateig Chelsea. Bankes var í VAR herberginu og steig ekki inn í. Atvikið átti sér stað í stöðunni 2-1 og Chelsea náði að jafna seinna í leiknum.
Ramsey tekur út leikbannið gegn Manchester City í enska bikarnum á laugardag.
Athugasemdir

