Tottenham og Crystal Palace eigast við þessa stundina í ótrúlegum leik.
Það kom upp atvik eftir hálftíma leik þegar Ismaila Sarr virtist vera koma Crystal Palace yfir. Hann var ekki viss og fagnaði markinu ekki mikið, miðað við sjónvarpsútsendingu virtist markið löglegt en VAR sýndi að hann var með ennið fyrir innan og rangstaða dæmd.
Fimm mínútum síðar tókst Tottenham að refsa þegar Dominic Solanke kom liðinu yfir eftir sendingu frá Archie Gray. Strax í kjölfarið fékk Palace hins vegar vítaspyrnu og Micky van de Ven fékk að líta rauða spjaldið fyrir brot á Sarr. Hann tók vítið og skoraði.
Jörgen Strand Larsen kom síðan Palace yfir í uppbótatíma fyrri hálfleiks sem er enn í gangi en átta mínútum var bætt við.
Tottenham er sem stendur aðeins einu stigi frá falli en þetta er þriðji leikurinn undir stjórn Igor Tudor sem er nú þegar undir pressu.
Athugasemdir


