Arne Slot, stjóri Liverpool, hefur staðfest að þýski landsliðsmaðurinn Florian Wirtz sé kominn aftur til æfinga og gæti spilað í bikarleiknum gegn Wolves annað kvöld.
Wirtz hefur ekki spilað síðan hann meiddist í upphitun fyrir 1-0 sigur gegn Nottingham Forest fyrir tveimur vikum.
Wirtz hefur ekki spilað síðan hann meiddist í upphitun fyrir 1-0 sigur gegn Nottingham Forest fyrir tveimur vikum.
Hann gat ekki tekið þátt í tapinu vandræðalega gegn Úlfunum í vikunni en liðin mætast aftur á morgun á Molineux, þá í 16-liða úrslitum FA-bikarsins.
Wirtz var mættur aftur til æfinga í gær en hann hafði spilað virkilega vel vikurnar áður en hann meiddist. Ekki er líklegt að hann byrji á morgun en hann gæti komið við sögu.
Alexander Isak, Conor Bradley, Wataru Endo, Giovanni Leoni og Stefan Bajcetic eru áfram á meiðslalista Liverpool.
Athugasemdir


