Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka, var eðlilega sáttur eftir leik sinna manna gegn Hvíta Riddaranum. Haukar unnu leikinn 2-0 og sitja því enn á toppi 2. deildar.
„Gott að skora tvö mörk og halda hreinu á erfiðum útivelli," sagði Guðjón við Fótbolta.net beint eftir leik.
„Gott að skora tvö mörk og halda hreinu á erfiðum útivelli," sagði Guðjón við Fótbolta.net beint eftir leik.
Lestu um leikinn: Hvíti riddarinn 0 - 2 Haukar
„Fyrri hálfleikur var nokkuð góður. Við vorum ekki eins öflugir sóknarlega en vorum mjög þéttir varnarlega og gáfum þeim ekki mörg færi á okkur í seinni hálfleik. En heilt yfir var þetta mjög gott," sagði Guðjón Pétur um gang leiksins.
Ein stærsta knattspyrnustjarna Íslendinga, Sara Björk Gunnarsdóttir, gekk í raðir Hauka fyrr í dag. Guðjóni Pétri líst stórkostlega vel á það fyrir Hauka.
„Þvílíkur hvalreki fyrir okkur að hafa náð svona öflugum leikmanni inn í starfið. Ég hef ekkert nema jákvætt um það að segja. Félagið er á góðri vegferð og vonandi koma jafnvel fleiri leikmenn í framtíðinni," sagði Guðjón Pétur.
„Það er verið að byggja upp með því að fá inn góða karaktera eins og Pablo og Einar, leiðtoga sem hafa unnið. Það ýtir undir aðra og smitar út frá sér. Það er góður andi yfir félaginu en við þurfum að halda áfram að leggja okkur fram og skila inn frammistöðu sem við eigum að geta skilað," bætti hann ennfremur fram þegar aðspurður um uppsveifluna innan félagsins
Guðjón Pétur fer ekki í felur með það að markmið liðsins sé að leika í Lengjudeildinni á næsta tímabili, en er félagið með langtímamarkmið?
„Við erum á hverjum degi að reyna að gera betur en í gær og ef við höldum því áfram og náum að gera hlutina vel þá leiðir það til þess að á næstu árum verðum við vondandi alla veganna komnir í fyrstu deild. Svo setjum við stefnuna á að komast upp í efstu deild í framhaldi. Eina leiðin til þess að ná árangri að mínu mati er að gera betur en í fyrra og við ætlum okkur að vinna leiki. Það mun skila sér vonandi á endanum og Haukar verða í efstu deild," sagði hann að lokum.






















