26.07.26 - 13:17
Brynjar Ingi Erluson
Sex Íslendingar mætast á Parken - Davíð hent beint í djúpu laugina

Davíð Helgi er í byrjunarliði Lyngby

Mynd: Lyngby

Davíð Helgi er í byrjunarliði Lyngby

Mynd: Lyngby
Sex Íslendingar eru í hópnum hjá FCK og Lyngby sem mætast í 1. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar klukkan 14:00 á Parken í dag.

TENGT EFNI
Davíð Helgi til Lyngby (Staðfest) - Býst við því að verðmæti hans muni aukast verulega
Hinn ungi og efnilegi Gunnar Orri Olsen er á bekknum hjá FCK eftir að hafa vakið athygli með unglingaliðum félagsins og staðið sig vel með aðalliðinu á undirbúningstímabilinu. Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er einnig á tréverkinu.
Viktor Bjarki Daðason, aðalframherji FCK, missir hins vegar af leiknum vegna meiðsla.
Fjórir Íslendingar eru í leikmannahópi gestanna. Ísak Snær Þorvaldsson og Davíð Helgi Aronsson eru báðir í byrjunarliðinu en Davíð þreytir frumraun sína aðeins nokkrum dögum eftir að hann kom til Lyngby á láni frá Víkingi.
Daníel Freyr Kristjánsson, sem gekk til liðs við Lyngby frá Midtjylland, er á bekknum ásamt William Steindórssyni.
Michael John Kingdon starfar einnig sem leikgreinandi hjá Lyngby. Hann gekk til liðs við félagið á síðasta ári eftir að hafa sinnt leikgreiningu hjá Fylki og þjálfað 2. flokk karla. Michael er með UEFA A-þjálfaragráðu og hefur einnig starfað við leikgreiningu hjá yngri landsliðum Íslands.
FCK: Kotarski - Meling, Beijmo, Pereira, Lopez - Delaney, Kral, Elyounoussi - Geovanni, Cornelius, Moukoko
Lyngby: Kochen - Buur, Fischer, Aronsson , Tytens - Winther, Sandgrav, Fraulo, Colyn - Bøndergaard, Þorvaldsson