Fotbolti.net
26.07.26 - 10:26
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal á eftir Alvarez og Vini Jr - Juventus vill fá fyrirliða Man Utd

Vini Jr er á óskalista Arsenal

Vini Jr er á óskalista Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Englandsmeistararnir hafa blandað sér í baráttuna um Vinicius Jr, leikmann Real Madrid, Inter hefur áhuga á Cristian Romero og Leipzig hafnar tilboðum í Yan Diomande. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Arsenal ætlar að reyna að kaupa brasilíska vængmanninn Vinicius Jr (26) ef hann ákveður að framlengja ekki samning sinn við Real Madrid. (Athletic)

Jose Mourinho, nýr þjálfari Real Madrid, er sagður mótfallinn því að Vinicius Jr verði seldur í sumar enda vill hann halda stærstu stjörnum liðsins. (Telegraph)

Arsenal undirbýr mettilboð í argentínska framherjann Julian Alvarez (26), leikmann Atletico Madrid. (Teamtalk)

Inter hefur áhuga á argentínska varnarmanninum Cristian Romero (28) hjá Tottenham. (Sky Sports)

RB Leipzig hefur hafnað 85,4 milljóna punda tilboði Real Madrid í vængmanninn Yan Diomande (19). Liverpool, Manchester City og fleiri stórlið hafa einnig áhuga á honum. (Sky Sports)

Forráðamenn Roma eru orðnir óþreyjufullir vegna þess hve lengi Manchester United dregur að leggja fram tilboð í franska miðjumanninn Manu Kone (25). (Corriere dello Sport)

Juventus skoðar möguleikann á að fá Bruno Fernandes (31), fyrirliða Manchester United, og hefur rætt við umboðsmenn hans. (Caught Offside)

Chelsea hefur hafnað þriðja tilboði Como í enska varnarmanninn Trevoh Chalobah (27). (Talksport)

Napoli hefur áhuga á franska varnarmanninum Benoit Badiashile (25) hjá Chelsea. (Sun)

Þýski miðjumaðurinn Julian Brandt (30) er með tilboð frá Ajax og Leeds United. Hann er án félags eftir að samningur hans við Borussia Dortmund rann út um síðustu mánaðamót. (Sky Sports)

Nottingham Forest hefur lagt fram nýtt og endurbætt tilboð upp á 17,5 milljónir punda í Givairo Read (20), hægri bakvörð Feyenoord. (Mail)

West Ham hefur hafnað tilboði Brentford í senegalska vinstri bakvörðinn El Hadji Malick Diouf (21) og ítrekað að hann sé ekki til sölu. (Talksport)

Middlesbrough hefur áhuga á tékkneska markverðinum Radek Vitek (22) hjá Manchester United, en hann lék með Bristol City á láni á síðasta tímabili. (Sky Sports)
Inter vill fá Cristian Romero

Inter vill fá Cristian Romero

Canon

Mynd: EPA

Julian Alvarez er í sigtinu hjá Atlético

Julian Alvarez er í sigtinu hjá Atlético

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.