Fotbolti.net
05.08.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arbeloa: Garcia er einn besti framherji heims

Arbeloa: Garcia er einn besti framherji heims
Canon

Mynd: Fulham

Alvaro Arbeloa, stjóri Fulham, segir að Gonzalo Garcia, nýjasti leikmaður liðsins, sé einn besti framherji heims.

Garcia er 22 ára en hann gekk til liðs við Fulham frá Real Madrid í sumar. Garcia og Arbeloa unnu saman hjá spænska liðinu á síðustu leiktíð.
„Ég vona að hann skori mörk. Hann er auðvitað með hraða, gæði, hann er sterkur og getur hlaupið. Hann getur pressað svo fyrir mér er hann einn besti framherji í heimi með alla þessa frábæru eiginleika," sagði Arbeloa.

„Ég er svo ánægður því ég veit að það var svo margt sem hann vildi og hann ákvað að koma til okkar. Ég er svo stoltur og mjög ánægður að hafa hann hjá okkur."

Garcia spilaði 51 leik fyrir Real Madrid og skoraði 13 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.