27.07.26 - 23:08
Brynjar Ingi Erluson
Viðræður Besiktas við Salah settar á ís - „Tók raunsæja ákvörðun í stað þess að friða fjöldann“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enn er óvíst hvar egypski sóknarmaðurinn Mohamed Salah leikur á næsta tímabili en babb er komið í bátinn í viðræðum hans við Besiktas.
Ramy Abbas Issa, umboðsmaður Salah, hefur átt í löngum viðræðum við Besiktas undanfarnar vikur, en leikmaðurinn hefur verið án félags síðan samningur hans við Liverpool rann út um mánaðamótin.
Salah hefur þegar náð samkomulagi við félagið um persónuleg kjör en gríðarlega há þóknun Abbas stendur í vegi fyrir félagaskiptunum.
Umboðsmaðurinn fór upphaflega fram á 7,5 milljónir evra fyrir sinn hlut í viðskiptunum en hefur síðan gefið örlítið eftir.
Samkvæmt Yagiz Sabuncuoglu, einum virtasta blaðamanni Tyrklands, hefur Besiktas ekki enn svarað nýjasta tilboði Abbas og eins og staðan er núna er ólíklegt að hann fari þangað samkvæmt Önder Özen, yfirmanni fótboltamála hjá félaginu.
„Mohamed Salah er stórstjarna í fótboltaheiminum. Í upphafi viðræðnanna hittum við Vincenzo Italiano (þjálfari Besiktas, Salah þrisvar sinnum. Það hægði hins vegar á viðræðunum eftir fyrstu dagana.“
„Forsetinn ákvað nákvæmlega hversu langt félagið væri tilbúið að ganga og hefur staðið fastur á því síðan. Í stað þess að taka ákvörðun til að friða fjöldann tók hann raunsæja ákvörðun og steig frá samningaborðinu í bili. Salah-málið hefur því verið lagt til hliðar hjá okkur eins og staðan er núna,“ sagði Özen.
Félög í Sádi-Arabíu og Bandaríkjunum hafa einnig áhuga. Salah hefur lengi verið helsta skotmark sádiarabísku deildarinnar og eru stjórnarmenn hennar sagðir tilbúnir að bjóða honum gríðarlega há laun.
Þar er litið á Salah sem mögulegt andlit deildarinnar, ekki síst vegna þess að hann er einn þekktasti múslimski íþróttamaður heims.