Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 20:25
Ívan Guðjón Baldursson
Brynjar skoraði í ótrúlegum níu marka leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Álasund
Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins víða um Evrópu og var Brynjar Ingi Bjarnason í byrjunarliði Greuther Fürth sem tapaði eftir ótrúlega skemmtilegan fallbaráttuslag gegn Magdeburg.

Brynjar Ingi skoraði fyrsta mark leiksins á áttundu mínútu en gestirnir svöruðu með fimm mörkum á tuttugu mínútna kafla. Mateusz Zukowski setti þrennu og átti Baris Atik þrjár stoðsendingar á þessum ótrúlega kafla.

Hver einasta marktilraun hjá Magdeburg rataði í netið á þessum kafla en heimamenn tóku völdin á vellinum í kjölfarið og voru búnir að minnka muninn niður í eitt mark í upphafi síðari hálfleiks.

Þeim tókst þó aldrei að jafna metin svo lokatölur urðu 4-5 fyrir Magdeburg.

Greuther Fürth er í botnsæti næstefstu deildar þýska boltans, með 19 stig eftir 21 umferð. Magdeburg er með 23 stig.

Þá var mikið af æfingaleikjum hjá skandinavísku liðunum þar sem Júlíus Mar Júlíusson var í byrjunarliði Kristiansund í markalausu jafntefli gegn Molde á meðan Hrannar Snær Magnússon sat á bekknum. Ólafur Guðmundsson var í byrjunarliði Álasunds sem sigraði Hödd. Flest þessara liða eru stödd í æfingabúðum í suðurhluta Evrópu.

Kolbeinn Þórðarson byrjaði á bekknum í sigri Gautaborgar og voru ýmis önnur Íslendingalið sem öttu kappi.

Að lokum var Jóhann Berg Guðmundsson ónotaður varamaður í tapi Al-Dhafra gegn Khorfakkan í efstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Al-Dhafra er í neðri hluta deildarinnar með 16 stig eftir 15 umferðir.

Greuther Furth 4 - 5 Magdeburg
1-0 Brynjar Ingi Bjarnason ('8)
1-1 Reno Munz ('13, sjálfsmark)
1-2 Mateusz Zukowski ('15)
1-3 Rayan Ghrieb ('23)
1-4 Mateusz Zukowski ('29)
1-5 Mateusz Zukowski ('33)
2-5 Doni Arifi ('43)
3-5 Jan Elvedi ('45+5)
4-5 Sayfallah Ltaief ('47)

HamKam 2 - 0 Kongsvinger

Aalesund 2 - 0 Hödd

Vålerenga 5 - 2 Sandefjord

Lyngby 1 - 0 Ararat-Armenia

Molde 0 - 0 Kristiansund

Viking 4 - 0 Start

Göteborg 3 - 1 Artis Brno

Al-Dhafra 2 - 3 Khorfakkan

Athugasemdir
banner
banner