Fotbolti.net
26.10.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Maguire: Eitthvað verður að breytast

Maguire: Eitthvað verður að breytast
Canon

Mynd: EPA

Man Utd er án sigurs í síðustu átta leikjum í öllum keppnum eftir 3-0 tap gegn Bournemouth í gær.

Það er ljóst að Michael Carrick er undir mikilli pressu. Harry Maguire var spurður að því eftir leikinn hvað væri að gerast.
„Þetta er ekki að tikka, úrslitin hafa ekki verið góð en þetta er langt tímabil. Við verðum að finna eitthvað, maður verður að líta í eigin barm og spyrja sig hvað maður hefur fram að færa. Ef menn gera það komumst við út úr þessu," sagði Maguire.

„Við berum ábyrgð. Þetta er risa félag að spila fyrir og maður verður að sanna fyrir öllum hvers vegna þú ert í þessari treyju. Carrick sneri síðasta tímabili á hvolf. Við spiluðum frábæran fótbolta og unnum leiki en við höfum ekki unnið nægilega marga leiki á þessu tímabili. Við viljum gera betur fyrir stuðningsmennina. Eitthvað verður að breytast."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.