26.10.26 - 12:14
Elvar Geir Magnússon
Halda áfram að ræða um framtíð Carrick

Michael Carrick.

Mynd: EPA

Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála hjá Man Utd.

Mynd: EPA

Michael Carrick.

Mynd: EPA
Framkvæmdastjórinn Omar Berrada og Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála, eru báðir á æfingasvæði Manchester United en talið er að í þessum skrifuðu orðum séu áframhaldandi fundarhöld um framtíð Michael Carrick í gangi.
Sjálfur er Carrick ekki á Carrington æfingasvæðinu en það er frídagur hjá hans liði í dag.

TENGT EFNI
Howe klár í viðræður við Man Utd - Emery besti kosturinn?
Fyrirliðinn Bruno Fernandes er hinsvegar á svæðinu í meðhöndlun vegna meiðsla sem hann hefur verið að spila í gegnum.
Kobbie Mainoo, Marcus Rashford, Benjamin Sesko, Luke Shaw og Manuel Ugarte misstu allir af 0-3 tapleiknum gegn Bournemouth í gær vegna meiðsla og eru einnig á svæðinu.
Síðustu vikur hafa verið stormasamar hjá Manchester United, gengið hefur verið slæmt og leikmenn gagnrýnt stjórn félagsins og uppleggið.
Stór hluti stuðningsmanna beinir pirringi sínum að leikmönnum og stjórnendum félagsins frekar en Carrick en það er þó ljóst að hann er í sjóðandi heitu sæti.

Heimild: BBC