Fotbolti.net
06.02.26 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson

Carrick gefur leikmönnum frí eftir leiki

Man Utd er í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 41 stig eftir 24 umferðir, einu stigi fyrir ofan Chelsea.

Man Utd er í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 41 stig eftir 24 umferðir, einu stigi fyrir ofan Chelsea.

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick virðist hafa tekist hið ótrúlega hjá Manchester United. Hann tók við stjórnartaumunum í janúar og er búinn að stýra liðinu til sigurs gegn Manchester City, Arsenal og Fulham í fyrstu þremur leikjunum við stjórnvölinn.
Breytingin var augljós strax í fyrsta leik gegn Man City þar sem Rauðu djöflarnir spiluðu frábærlega og gáfu ekkert eftir til að vinna sannfærandi 2-0 sigur. Leikmönnum liðsins leið vel inni á vellinum og það sást augljóslega á líkamstjáningunni, eitthvað sem hefur vantað uppá á undanförnum árum.

Leikmenn liðsins voru brosandi og það var eins og þungu fargi hefði verið létt af herðum þeirra. Ekki vantaði þó efasemdarraddirnar sem sögðu að Man Utd skilar hvort sem er alltaf frammistöðu gegn Man City og að allt færi aftur í bál og brand í næsta leik gegn Arsenal, en svo varð ekki.

Enskir fjölmiðlar spyrja sig hver ástæðan sé á bakvið þennan viðsnúning, hvernig tókst Carrick að breyta hlutunum svona fljótt? Það eru taldar vera ýmsar ástæður fyrir því og fjallar The Sun um eina þeirra sem er einföld: Carrick gefur leikmönnum hvíld daginn eftir leik.

Hvorki Erik ten Hag né Rúben Amorim gáfu leikmönnum Man Utd hvíld eftir leiki, þess í stað mættu leikmenn á æfingasvæðið til að vinna í endurheimt. Núna fá þeir að vera heima með fjölskyldum sínum í sólarhring áður en þeir mæta aftur til æfinga.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.