Fotbolti.net
06.02.26 - 22:04
Ívan Guðjón Baldursson

England: Leeds ekki í vandræðum með Forest

Ilia Gruev átti tvær stoðsendingar í sigrinum.

Ilia Gruev átti tvær stoðsendingar í sigrinum.

Canon

Mynd: EPA

Leeds 3 - 1 Nott. Forest
1-0 Jayden Bogle ('26 )
2-0 Noah Okafor ('30 )
3-0 Dominic Calvert-Lewin ('49 )
3-1 Lorenzo Lucca ('86 )
Leeds United tók á móti Nottingham Forest í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og voru heimamenn sterkari aðilinn.

Þeir komust nokkrum sinnum í góðar stöður áður en vængbakvörðurinn Jayden Bogle tók forystuna eftir stórkostlega sendingu frá Ilia Gruev. Bogle átti gott hlaup innfyrir vörnina og kláraði færið meistaralega.

Áfram sóttu nýliðar Leeds og tvöfaldaði Noah Okafor forystuna skömmu síðar eftir undirbúning frá James Justin. Miðvörðurinn tekníski spilaði sig laglega í gegnum vörn Forest áður en hann lét vaða á markið en Stefan Ortega varði boltann aftur til hans. Justin var ekki í færi til að fylgja eftir en fann fullkomna sendingu aftur út í teiginn beint á Okafor sem skoraði af auðveldu færi.

Dominic Calvert-Lewin byrjaði seinni hálfleikinn á að setja þriðja mark Leeds. Hann kláraði með öxlinni eftir fyrirgjöf frá Gruev og staðan orðin 3-0. Calvert-Lewin er kominn með 10 mörk á úrvalsdeildartímabilinu.

Gestirnir frá Nottingham reyndu að minnka muninn en sköpuðu ekki mikið af færum. Þeir áttu góðar rispur og náðu að minnka muninn þegar Ítalinn hávaxni Lorenzo Lucca kom inn af bekknum og skallaði fyrirgjöf í netið.

Það dugði þó ekki til og lokatölur urðu 3-1. Leeds er núna með 29 stig, þremur stigum fyrir ofan Forest.

Forest er áfram sex stigum fyrir ofan fallsvæðið eftir þetta tap.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.