Fotbolti.net
06.02.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
LiveyÍtalski boltinn

Ítalía um helgina - Mikael Egill gegn meisturunum

Mikael Egill mætir Napoli

Mikael Egill mætir Napoli

Canon

Mynd: EPA

Þrír Íslendingar verða í eldlínunni í 24. umferð Seríu A á Ítalíu um helgina.
Á laugardag mætast Genoa og Ítalíumeistarar Napoli klukkan 17:00.

Mikael Egill Ellertsson er fastamaður í liði Genoa sem er með það markmið að fjarlægast fallbaráttuna á meðan Napoli má ekki við því að tapa fleiri stigum í titilbaráttunni.

Albert Guðmundsson og félagar í Fiorentina mæta Torino í Flórens, en Fiorentina er í fallsæti með 17 stig, einu stigi frá öruggu sæti. Fiorentina hefur tapað síðustu tveimur deildarleikjum í röð.

Á sunnudag munu Þórir Jóhann Helgason og hans menn í Lecce mæta Udinese. Þórir Jóhann hefur fengið fáar mínútur til þess að spreyta sig og var hann orðaður við B-deildarlið Venezia undir lok gluggans, en það varð ekkert úr því.

Lecce er með 18 stig, einu stigi fyrir ofan fallsæti.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:
19:45 Verona - Pisa

Laugardagur:
17:00 Genoa - Napoli
19:45 Fiorentina - Torino

Sunnudagur:
11:30 Bologna - Parma
14:00 Lecce - Udinese
17:00 Sassuolo - Inter
19:45 Juventus - Lazio

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter8+1322
2Lazio8+1122
3Roma8+1318
4Milan8+918
5Como8+717
6Frosinone8+414
7Juventus8+314
8Torino8+213
9Cagliari8-313
10Napoli8+311
11Atalanta8-110
12Lecce8-59
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Genoa8-77
17Udinese8-94
18Fiorentina8-104
19Parma8-104
20Venezia8-113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.