Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 17:30
Brynjar Ingi Erluson
Magnús Arnar hjá HK út 2028
Mynd: HK
Miðjumaðurinn Magnús Arnar Pétursson hefur framlengt samning sinn við HK út 2028.

Þessi 19 ára gamli orkumikli leikmaður er uppalinn HK-ingur sem þreytti frumraun sína með liðinu í Lengjudeildinni árið 2022.

Hann lék með 2. flokki félagsins árið 2023 en kom sterkur inn árið 2024 og spilaði þá 11 leiki í Bestu deildinni og gerði eitt mark.

Á síðasta ári lék hann ellefu leiki í Lengjudeildinni er HK fór alla leið í úrslit umspilsins, en þar tapaði liðið fyrir Keflavík, 4-0, og missti því af sæti í Bestu deildina.

Góðu fréttirnar eru þó þær að Magnús Arnar verður áfram í HK og ætlar að leggja sitt af mörkum í að koma félaginu aftur í efstu deild, en hann gerir samning út 2028.


Athugasemdir
banner
banner