Wayne Rooney segir að besta mark ensku úrvalsdeildarinnar hafi verið mark Robin van Persie þegar hann tók boltann á lofti í leik með Manchester United gegn Aston Villa 2013.
Van Persie skoraði öll þrjú mörk United í 3-0 sigri þegar United innsiglaði meistaratitilinn það ár.
„Í mínum huga er þetta besta mark í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Við æfðum þetta á æfingasvæðinu því við vissum að miðverðirnir þeirra væru ekki þeir sneggstu," segir Rooney sem lagði upp markið.
„Ég var að spila dýpra en Robin og sagði við hann að ef ég fengi tíma ætti hann bara að hlaupa og ég myndi finna hann."
„Þetta var líklega besta sending sem ég hef átt, hún var fullkomin. Við unnum deildina þennan dag. Allt var fullkomið."

Wayne Rooney on his assist for Robin van Persie's volley vs Aston Villa.
— Kyama ? (@ElijahKyama_) February 6, 2026
"It's probably the BEST pass I've ever played. It was perfect to him. As soon as it left my foot I thought I've done my job. We won the league that day. Everything was perfect."pic.twitter.com/1vy1RMfeyk
Athugasemdir