Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
68 ára og til í að hjálpa Tottenham
Mynd: EPA
Hinn 68 ára gamli Glenn Hoddle, fyrrum leikmaður og stjóri Tottenham, segist vera tilbúinn að hjálpa Tottenham sem er í miklum vandræðum þessa dagana.

Igor Tudor tók við liðinu til bráðabirgða eftir að Thomas Frank var látinn taka pokann sinn en liðið hefur tapað öllum þremur leikjum sínum undir hans stjórn og er aðeins einu stigi frá fallsæti.

Robbie Keane, stjóri Ferencvaros og fyrrum leikmaður Tottenham, er orðaður við stjórastöðuna en Hoddle segist vera tilbúinn til að hjálpa til.

„Ég myndi gera það. Sérstaklega hjá Tottenham, það er mitt félag. Ég hef stutt liðið síðan ég var átta ára svo það hefur verið risastór partur af mínu lífi."

Hoddle stýrði liðinu frá 2001-2003.
Athugasemdir
banner