Markús Páll Ellertsson er genginn til liðs við ÍA, kemur á frjálsri sölu til Skagamanna frá Triestina á Ítalíu. Markús Páll gerir fjögurra ára samning við ÍA. Hann á að baki fjóra leiki með U19 landsliðinu.
Sóknarmaðurinn er fæddur árið 2006 og er uppalinn hjá Fram. Eftir tímabilið 2024 samdi hann við ítalska félagið en hefur lítið spilað með aðaliðinu. Markús er yngri bróðir landsliðsmannsins Mikaels Egils sem spilar með Genoa á Ítalíu.
Hann kom til móts við nýju liðsfélaga sína í gær en Skagamenn eru í æfingaferð á Tenerife. Markús Páll er fimmti leikmaðurinn sem ÍA krækir í þennan veturinn áður höfðu þeir Böðvar Böðvarsson, Guðmundur Þórarinsson, Gísli Eyjólfsson og Rafael Máni Þrastarson samið við félagið.
Markús gæti spilað sinn fyrsta leik með ÍA á sunnudag þegar liðið mætir KR á Tenerife á sunnudag.

Tilkynning ÍA
Markús Páll Ellertsson gengur til liðs við ÍA
Markús Páll Ellertsson hefur gengið til liðs við ÍA á frjálsri sölu frá ítalska liðinu Triestina og skrifar undir fjögurra ára samning við félagið.
Markús Páll, sem er fæddur árið 2006, er öflugur sóknarmaður sem mun færa liðinu marga góða kosti framarlega á vellinum. Hann býr yfir miklum hraða, er öflugur í loftinu og er afar góður skotmaður.
Markús Páll kom til móts við liðið í gærkvöldi, en það er nú statt í æfingaferð á Tenerife. Hann tekur þátt í sinni fyrstu æfingu með liðinu í dag.
Við bjóðum Markús Pál hjartanlega velkominn á Skagann!
Athugasemdir