06.12.24 - 15:30
Elvar Geir Magnússon
Foden með berkjubólgu

Foden er að glíma við veikindi.

Mynd: Getty Images

Foden er að glíma við veikindi.

Mynd: Getty Images
Phil Foden og Nathan Ake verða báðir fjarri góðu gamni á morgun þegar Manchester City heimsækir Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni.
Foden er að glíma við berkjubólgu (bronkítis), bólgu í lungnaberkjunum, og það hefur haft mikil áhrif á frammistöðu hans, hann hefur ekki náð sama flugi og á síðasta tímabili.
Foden er að glíma við berkjubólgu (bronkítis), bólgu í lungnaberkjunum, og það hefur haft mikil áhrif á frammistöðu hans, hann hefur ekki náð sama flugi og á síðasta tímabili.

TENGT EFNI
England um helgina - Grannaslagir og mikil spenna
Ake meiddist aftan í læri í 3-0 sigri City gegn Nottingham Forest. Ekki er vitað hversu lengi hann verður frá en hann er allavega útilokaður frá leik morgundagsins.
Á meiðslalistanum eru einnig John Stones, Rodri, Oscar Bobb og Mateo Kovacic. Svissneski varnarmaðurinn Manu Akanji gæti spilað á morgun en hann fer í nánari skoðun fyrir leikinn.
City vann langþráðan sigur gegn Nottingham Forest í vikunni. Þetta var fyrsti sigur City síðan 26. október, þegar liðið vann 1-0 sigur gegn Southampton.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |