Fotbolti.net
07.02.26 - 11:25
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Man Utd og Tottenham: Romero byrjar - Óbreytt hjá heimamönnum

Cristian Romero byrjar og er með bandið þrátt fyrir ummæli sín í vikunni

Cristian Romero byrjar og er með bandið þrátt fyrir ummæli sín í vikunni

Canon

Mynd: EPA

Manchester United tekur á móti Tottenham í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 12:30 á Old Trafford í dag, en United er í leit að fjórða deildarsigrinum í röð.
Hegðun Romero ekki fyrirliða sæmandi
TENGT EFNI

Hegðun Romero ekki fyrirliða sæmandi

United er á skriði undir stjórn Michael Carrick sem tók við stöðunni í byrjun ársins.

Liðið hefur unnið Arsenal, Manchester City og Fulham í síðustu þremur deildarleikjum og ætlar að halda góðu gengi áfram í dag þegar Tottenham kemur í heimsókn.

Cristian Romero, fyrirliði Tottenham, skaut föstum skotum á stjórnina á dögunum og var gagnrýndur fyrir ummæli sín, en það er greinilega búið að ná sáttum því hann byrjar og er áfram með bandið.

Carrick breytir ekki sigurliði, en byrjunarliðin má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

Man Utd: Lammens, Dalot, Maguire, Martinez, Shaw, Casemiro, Mainoo, Amad, Fernandes, Mbeumo, Cunha.

Tottenham: Vicario, Udogie, Van de Ven, Romero, Gray, Palhinha, Sarr, Gallagher, Odobert, Xavi Simons, Solanke.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.