Sonia Bompastor hefur fengið nýjan samning sem aðalþjálfari kvennaliðs Chelsea þrátt fyrir slakt gengi á tímabilinu.
Chelsea situr í þriðja sæti ensku deildarinnar, tólf stigum á eftir toppliði Manchester City, og er að missa af Englandsmeistaratitlinum í fyrsta sinn síðan 2019.
Bompastor er á sínu öðru ári við stjórnvölinn og getur ennþá bjargað tímabilinu með góðum árangri í Meistaradeildinni.
Nýr samningur Bompastor gildir til sumarsins 2030 en hún var við stjórnvölinn hjá Lyon áður en hún tók við Chelsea.
Chelsea Women is delighted to announce that head coach Sonia Bompastor has extended her contract at the club through to 2030. ????
— Chelsea FC Women (@ChelseaFCW) February 6, 2026
Athugasemdir




